breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
Virðulegi forseti. Ég veit að hæstv. fjármálaráðherra er ýmsu vanur sem dýralæknir og í krafti embættisins og þeirrar maktar sem því fylgir ætla ég að biðja hann að mælast fyrir um það að þessi bandormur, sem er hluti af hagkerfi okkar og umræðunni um það — að við finnum honum eitthvað skárra nafn heldur en bandormur sem er lirfutengt, sullaveiki úr iðrum dýra og manna, hæstv. ráðherra. Þetta er nú bara útúrdúr. Ég er að benda á að það að hækka krónutöluskatt á almenning um 2,5%, það er búið að margbenda á að það gengur þvert á það að minnka verðbólgu. Ég held að ég biðji hæstv. ráðherra um að skoða möguleika á því að endurskoða það hreinlega. (Forseti hringir.) Í seinni helmingi mun ég koma að meginmáli mínu.