breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
Virðulegi forseti. Bandormurinn er ágætishugtak og sem áhugamaður um skordýr og hafandi skilning á því að þau eru undirstaða alls lífs þá megum við ekki tala illa um þau. En bandormurinn kemur auðvitað til af því að þarna er verið að sækja sér heimildir inn í ólíka lagabálka og tryggja með því í einum lögum, eins konar ormi sem er ofinn saman — þannig hefur þetta nú orðið til.
Varðandi krónutöluhækkanirnar þá erum við auðvitað að falla frá stórum hluta af þeim tekjum sem ríkið hefði fengið með því að leggja fram 2,5% viðmið í því göfuga markmiði að aðrir fylgi þar á eftir og hækki ekki meira. Þá getum við eðlilega náð fyrr því markmiði að verðbólga komist í þær prósentutölur. Ég held að það sé bara nokkuð göfugt markmið að við reynum að ná því líka.