breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
Virðulegur forseti. Varðandi hjúkrunarheimilin þá er það rétt að við þurfum að byggja meira og það hefur gengið hægt að byggja. Þess vegna er heilbrigðisráðherra búinn að vera með í undirbúningi, í samstarfi við fjármálaráðuneytið, breytingar á því fyrirkomulagi sem við erum að fara af stað með; við munum geta byggt hraðar að mínu mati og nýtt þá fjármuni betur.
Varðandi þetta ákvæði þá er það búið að vera mjög lengi í lögum og var einmitt heimilað einhvern tímann þegar menn áttu nóg í sjóðnum til að byggja en ekki nóg í rekstrinum. Örugglega er mikilvægt á einhverjum tímapunkti að komast út úr því. Þannig að ég tek undir það.
Varðandi séreignarsparnaðinn þá er mikilvægt að halda því til haga að það er engin ný ákvörðun í þessu frumvarpi. Ákvörðunin um að fella niður almenna séreignarsparnaðarákvæðið, þ.e. skattfrjálsa úttekt þeirra sem eru ekki að kaupa fyrstu fasteign, var tekin í fyrra frekar en hittiðfyrra og var ákveðið að það væri sólarlagsákvæði en það eru komin tíu ár. Varðandi fyrstu fasteign er mikilvægt að halda því til haga (Forseti hringir.) að það er engin breyting á því. Það hafa allir tíu ár til að nýta sér þetta úrræði.