breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
Virðulegi forseti. Ég veit að hv. þingmaður þekkir það mjög vel að fyrsti hlutinn er greiddur af NTÍ þegar til hamfara kemur. Síðan koma endurtryggjendur inn, reyndar ekki fyrr en í þriðju lotu, og þegar það brestur tekur ríkissjóður við. Við erum einfaldlega stödd þar að við erum að undirbúa okkur undir hamfarir framtíðarinnar. Í því skyni er verið að segja: Við þurfum að hafa NTÍ sterkari til að geta gripið til hans til lengri framtíðar en ella.
Varðandi 15 milljarðana sem ríkið notaði til að kaupa Þórkötluhúsin þá hefur það líka farið úr ríkissjóði. Og hver greiðir það, hv. þingmaður? Það er greitt af sköttum fólksins í landinu, þeim sömu og eiga húseignirnar að stærstu leyti enda eru 80% heimila landsins í sínu eigin húsnæði. Viljum við leiguhúsnæði sem einhver annar greiðir af? (Forseti hringir.) Þetta var ákveðið á sínum tíma. Hér er verið að horfa til framtíðar og tryggja að NTÍ sé með nægjanlega sterka greiðslustöðu til að þola hamfarir af stærri stærðargráðu en við höfum séð eða í það minnsta jafn stórar.