155. löggjafarþing — 5. fundur,  16. sept. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[16:22]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Svar hæstv. ráðherra var frekar loðið. Það er rétt að Náttúruhamfaratrygging borgar fyrstu tíu milljónirnar og svo taka endurtryggingar við. Vandamálið er að þessi hús eyðilögðust ekki. Vandamálið er að þessi hús falla ekki undir það sem Náttúruhamfaratrygging tryggir. Það að taka eigið fé út úr Náttúruhamfaratryggingasjóði til að borga uppkaupin er ekki í takt við það sem sjóðurinn á að gera. Það að setja þetta upp eins og við séum að reyna að stilla Náttúruhamfaratryggingu upp, tilbúinni til að takast á við hamfarir framtíðarinnar — hvað voru þá ráðuneyti og ráðherra og ríkisstjórn að gera þegar þau tóku 15 milljarða kr. út úr sjóðnum? Jú, það var verið að veikja Náttúruhamfaratryggingu og nú á smátt og smátt að láta það koma til baka í gegnum eigendur húsnæðis í stað þess að finna aðrar leiðir til að fjármagna þessa leið ríkisstjórnarinnar, til að slá ryki í augun á fólki.