breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
Virðulegi forseti. Ég held að enginn hafi verið að slá ryki í augu eins eða neins. Menn eru meðvitaðir um að ekki er hægt að ganga á eignir Náttúruhamfaratrygginga í endalausu magni. Þetta var ekki talið óeðlilegt miðað við það tjón sem Náttúruhamfaratrygging hefði hugsanlega þurft að fara inn í á sínum tíma. Ég er fyrst og fremst að segja að til lengri tíma þurfum við að hafa öflugar náttúruhamfaratryggingar með sterka greiðslugetu til að takast á við þau tjón sem hugsanlega geta orðið en við erum öll meðvituð um hvað gerist ef NTÍ getur það ekki. Þá er það greitt úr ríkissjóði og það er sami sjóður og er að greiða inn í NTÍ. Bakland NTÍ er fyrst og fremst ríkið, almenningur í landinu. Þetta er því spurning um hvaða aðferðafræði er best á hverjum tíma og hér er verið að leggja til og gefa NTÍ heimild til hækkunar til að vera sterkur sjóður til að standa undir sinni greiðsluskyldu.