155. löggjafarþing — 5. fundur,  16. sept. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[16:25]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Í tilefni Evrópsku samgönguvikunnar langar mig að spyrja hæstv. ráðherra út í lítinn en dálítið skemmtilegan þátt loftslagsbaráttunnar sem birtist í bandorminum, aðgerð sem hefur stuðlað að breyttum ferðavenjum á síðustu árum. Hér er ég að tala um ívilnun til kaupa á reiðhjólum og rafmagnsreiðhjólum sem hefur verið í gangi á síðustu árum. Síðasta haust var lagt til að fella þá ívilnun úr gildi en meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar sneri þeirri ákvörðun, sem betur fer, og framlengdi um eitt ár með þeim skilaboðum til ráðuneytis að skoða hvort mætti síðan framlengja til lengri framtíðar. Sú greining er aðgerð sem er sett á herðar ráðuneytisins í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og um það er talað í greinargerð með fjárlagafrumvarpinu að eigi að skoða í tengslum við þau mál sem við ræðum hér þessa dagana. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra, vegna þess að ekki er lagt til að framlengja þessa ívilnun í bandorminum: (Forseti hringir.) Hefur þessi greining átt sér stað? Ef ekki, hvenær má búast við að niðurstaða hennar muni skila sér?