155. löggjafarþing — 5. fundur,  16. sept. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[16:26]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er sammála hv. þingmanni að skattaívilnanir sem við höfum veitt hafa virkað, margar hverjar hafa líka kostað verulega fjármuni, eins og til að mynda ívilnanir vegna kaupa á rafmagnsbílum eða nýorkubílum. Við breyttum því í fyrra og fórum þá í það að fara svona sænska leið þar sem menn sækja um stuðning, sem er þá ívið minni, og miðast að öðrum minni farartækjum, ódýrari farartækjum til þess að hvetja áfram til þess. Varðandi reiðhjólin, rafhlaupahjól og slíkt þá var það niðurstaðan að leggja það ekki til og að þetta rynni út núna eins og tillagan var í fyrra og er með sambærilegum rökum, þ.e. á einhverjum tímapunkti verðum við að finna einhverjar aðrar leiðir þar sem ríkissjóður verður auðvitað líka að fá tekjur. En það er líka spurning alltaf um þessa hvata. (Forseti hringir.) Niðurstaðan er í þessu frumvarpi að framlengja ekki.