155. löggjafarþing — 5. fundur,  16. sept. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[16:29]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, ég get verið sammála hv. þingmanni með það að það er hollt að hreyfa sig, hjóla, ganga, taka ekki bílinn í allar sínar ferðir og mikilvægt fyrir lýðheilsuna að hvetja fólk til þess. Hv. þingmaður vísar til þess að það sé misræmi í þeim skilaboðum sem koma fram í þessum bandormi og í fjárlagafrumvarpinu. Það segir okkur náttúrlega að það er alltaf hægt að skoða hlutina betur. Við eigum eftir að fjalla um þetta hér í þinginu, við eigum eftir að taka samtal við ráðuneytið og milli ráðuneytanna áður en við komum til að mynda í 2. umræðu. En ég bara svaraði hv. þingmanni skýrt. Tillagan er sem sagt ekki að framlengja. Það þarf þá að taka til umræðu og skoðunar hvort það eigi að endurskoða það.