breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir töluna hér þar sem við erum að ræða ýmsar breytingar á lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2025. Þetta er veigamikið og þarfnast talsverðrar yfirferðar af því að mér skilst að við séum að breyta hugsanlega 20 lagabálkum þegar við breytum þessum svokallaða bandormi.
Það er margt í þessu sem þarfnast skoðunar en eitt og annað sem mér finnst vera jákvætt. Ég er t.d. ánægður með að verið sé að breyta verðskrá eða krónutöluhækkunum, t.d. breytingum á áfengi og tóbaki eða bifreiðagjöldum og fleiri þáttum, það sé núna verið að horfa á verðbólgumarkmið Seðlabankans þegar kemur að þessum hækkunum. Það skiptir miklu máli að við séum ekki að fara umfram þessi verðbólgumarkmið ef við ætlum að ná einhverjum árangri í því að kveða niður verðbólguna. Strax á fyrsta ári þegar ég kom inn á Alþingi og fékk að halda ræðu, kom í pontu þegar stefnuræða forsætisráðherra var til umræðu, þá benti ég á að það væri verið að verðtryggja þessar krónutöluhækkanir og það er að mínu viti arfavitlaust ef við ætlum að taka þátt í að reyna að kveða niður verðbólgu. Vonandi munu síðan sveitarfélögin hvert á fætur öðru skrifa þetta inn í sínar fjárhagsáætlanir. Það skiptir máli að við séum samstiga í því að ná verðbólgunni niður, helst niður fyrir verðbólgumarkmið Seðlabankans, en á meðan við erum að sjá hækkanir á vörum og þjónustu langt umfram 2,5% þá munum við þurfa að glíma við verðbólguna.
Mig langar, virðulegur forseti, að fara í nokkrum orðum yfir atriðin sem felast í þessum svokallaða bandormi, þetta er ágætlega listað í greinargerðinni sem fylgir með frumvarpinu, og kannski fyrst að nefna það sem snýr að því sem heitir gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra. Þarna er verið að horfa til þess að gjaldið hækki um 2,5%. Þessi hækkun á að skila ríkissjóði 86 milljónum í viðbótartekjur. Ef 2,5% eru 86 milljónir þá held ég að 100% séu rúmir 3 milljarðar sem renna þá í framkvæmdasjóðinn á þessu ári. Það sem vekur athygli mína í þessu er að áfram á að veita heimild til þess að nýta Framkvæmdasjóð aldraðra í rekstur. Mig langar, virðulegur forseti, að fá að lesa hérna aðeins upp úr lögum um Framkvæmdasjóð aldraðra þar sem segir að:
„Framkvæmdasjóður aldraðra starfar á grundvelli laga um málefni aldraðra og er í vörslu heilbrigðisráðuneytisins. Sjóðurinn er fjármagnaður með sérstöku gjaldi sem skattstjórar leggja á þá sem skattskyldir eru á aldrinum 16–70 ára, samkvæmt lögum um tekjuskatt. Sjóðnum er ætlað að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land og skal fé úr honum varið til byggingar stofnana fyrir aldraða, þjónustumiðstöðva og dagdvala, að mæta kostnaði við nauðsynlegar breytingar á slíku húsnæði og til viðhalds húsnæðis dagdvalar-, dvalar- og hjúkrunarheimila, auk annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu. Nánar er kveðið á um hlutverk sjóðsins í reglugerð um Framkvæmdasjóð aldraðra nr. 468/2014.“
Við erum enn og aftur að veita heimild til þess, á sama tíma og okkur vantar fjármuni til að byggja upp hjúkrunarheimili erum við að veita heimild til þess að nýta þá fjármuni sem almenningur í landinu er að borga sem sértekjur inn í þennan sjóð, ætlaðar til uppbyggingar á húsnæði fyrir aldraða, í rekstur.
Mig langar bara að nefna hér að varaþingmaður VG sagði í viðtali á árinu 2020, fyrir fjórum árum síðan — sá starfaði, held ég, sem öldrunarlæknir, Ólafur Þór Gunnarsson — að það væri afar óheppilegt að við værum að gera þetta með þessum hætti. Áfram skal haldið og við erum enn á árinu 2025 að leggja það til að Framkvæmdasjóður aldraðra verði nýttur í rekstur sem er að mínu viti mjög slæmt.
Þar á eftir langar mig að nefna það sem hæstv. fjármálaráðherra nefndi varðandi bakábyrgðir ríkis og sveitarfélaga. Þetta á rætur sínar að rekja til breytinga sem voru gerðar á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða, um að lífeyrissjóðir verði alltaf að eiga innlendar eignir varðandi væntar lífeyrisgreiðslur til þriggja ára. Þarna segir m.a. í þessu að í stað þess að skylda B-deildir sjóðanna til að losa um erlendar eignir sjóðdeildanna, sem almennt hafa gefið góða ávöxtun, þá eigi að undanþiggja B-deildirnar því að þurfa að eiga fjármuni til þriggja ára hér heima. Gott og vel, fínt, af því að þarna segir ríkisstjórnin: Við skulum leyfa þessum B-deildum að reyna að ávaxta peningana sína eins vel og hægt er. En á það ekki við um alla aðra lífeyrissjóði? Það er verið að loka á aðra lífeyrissjóði og segja: Nei, þið megið ekki ávaxta fjármunina ykkar eins og þið teljið að sé best, bara B-deildirnar af því það er hugsanlega ríkisábyrgð þar á bak við og þess vegna ætlum við að leyfa þeim að ávaxta peningana sína betur en öðrum lífeyrissjóðum. Hér er sagt: Já, almennt hefur þessi ávöxtun gefið góða raun og af hverju á að skylda aðra lífeyrissjóði til að ávaxta fjármuni sína einhvers staðar annars staðar en við bestu aðstæður? Ég fagna því að það sé verið að gera þetta en mér finnst að þetta ætti að gilda um alla lífeyrissjóði.
Mig langar síðan að nefna sóknargjöldin. Þar er verið að leggja fram tillögu um lækkun. Efnahags- og viðskiptanefnd tók það fyrir í fyrra og þar var samþykkt hækkun, veruleg hækkun. Ég mun ekki beita mér gegn því að þetta verði lækkað en Viðreisn hefur alltaf talað fyrir því að það sé eðlilegt og rétt að hvert trúfélag sjái um að innheimta fyrir sig og við séum ekkert að láta það fara fram í gegnum ríkisvaldið og að ríkisvaldið sé að ákveða með hvaða hætti þetta sé gert. Það er ekkert frelsi í því að setja þetta fram með þessum hætti. Það ætti í raun og veru að vera á forræði hvers trúfélags fyrir sig að sjá til þess að fólk borgi bara félagsgjald með einhverjum hætti. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )
Maður horfir síðan á sérstakt gjald vegna Ríkisútvarpsins sem á að skaffa 157 milljónir í viðbótartekjur. 2,5% eiga að gefa 157 milljónir og þetta gjald er að fara í tæplega 21.000 þannig að framkvæmdasjóðurinn og Ríkisútvarpið eru þá að búa til sérskatta á almenning upp á 35.000 á ári. Miðað við þessi 2,5% upp á 157 er Ríkisútvarpið að fá einhverja 6,2 milljarða. Manni bregður svolítið þegar maður sér svona tölur og spurningin hlýtur að vera sú, eins og í öðrum ríkisrekstri, hvort þetta sé eðlileg og sanngjörn tala eða hvort það þurfi að skoða með hvaða hætti sé hægt að reka Ríkisútvarpið á einhvern annan hátt. Ekki ætla ég að tala gegn Ríkisútvarpinu vegna þess að ég skil rekstur Ríkisútvarpsins en mér finnst þetta háar tölur og mér finnst eðlilegt að það sé ekki bara sjálfkrafa fjármagn til Ríkisútvarpsins heldur þurfi að fara í gegnum það með hvaða hætti Ríkisútvarpið fær fjármuni.
Það má líka nefna framlengingu á heimild til að greiða fé úr ofanflóðasjóði. Ég held að við þurfum að fara að endurskoða hvernig við erum að gera þetta, að við séum að nýta þennan sjóð sem var ætlaður í eitthvað annað, í að greiða fyrir náttúruhamfarir eða eldgos eða tjón sem hlýst af því, við þurfum að fara yfir allt þetta sjóðakerfi sem snýr að náttúruvá á Íslandi og búa til einn stóran og sterkan sjóð til að ná utan um það sem við þurfum að fara að gera hér á næstu árum.
Ég vil að sjálfsögðu nefna það sem stendur lækkun á framlagi ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða af því að mér er málið skylt, ég tók þátt í því á árinu 2006 að sjá til þess að við fengjum framlag frá ríkissjóði til að jafna örorkubyrði lífeyrissjóðanna. Hér hefur verið nefnt, m.a. af ráðherrum, að lífeyrissjóðirnir séu orðnir svo ríkir, þeir eiga 8.000 milljarða, að þeir geti bara reddað þessu sjálfir. En við lögum ekki örorkubyrði lífeyrissjóðanna með því að taka af öðrum lífeyrisþegum. Við erum í þeirri stöðu að hér erum við með alls konar atvinnugreinar og sumir lífeyrissjóðir eru með fólk innan borðs sem hefur unnið erfiðisvinnu. Það er annað með skrifstofublók eins og mig sem hefur nánast ekkert dýft hendi í kalt vatn nánast alla sína ævi. Við lifum lengur og við erum kannski ekkert endilega að fara á örorku, en fólk sem hefur unnið verkamannavinnu eða erfiðisvinnu allt sitt líf, það er miklu meiri hætta á að slíkir einstaklingar þurfi að fara og neyðist til að fara á örorku og það þýðir auðvitað að þessir sjóðir standa þá ekki jafnfætis öðrum sjóðum til greiðslu lífeyris. Þess vegna var þetta framlag keyrt í gegn af hendi stéttarfélaganna á sínum tíma og með samþykkt ríkisins. Mér þykir skrýtið að það sé verið að rífa þetta í burtu núna með einu pennastriki þó að þetta hafi verið samþykkt eða nefnt í fyrra, fyrir utan að það hefur komið hér fram í ræðustól að 60% af þessu framlagi renna til verkamannasjóðanna, nokkurra sjóða, og ef þessir sjóðir eru að nýta 60% af þessum 7 milljörðum sem hefðu átt að fara í þetta þá hefði þessi upphæð þurft að vera 4,2 milljarðar en ekki 2,5 eins og stendur í frumvarpinu, þannig að þetta mun hafa vond áhrif á þá sjóði sem þurfa að taka á sig mikla örorkubyrði. Ég vonast til þess að þetta verði lagfært í störfum nefndarinnar af því að það er óréttlæti að leggja það á suma lífeyrissjóði að geta ekki staðið við sínar skuldbindingar vegna þess að örorkubyrðin er miklu hærri en annars staðar.
Síðan erum við að sjá hækkun iðgjalda til Náttúruhamfaratryggingar og hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson minntist áðan á þessa 15 milljarða sem voru teknir út úr sjóðnum og veiktu í sjóðinn í fyrra, eða á þessu ári í raun og veru, og það mun auðvitað skerða möguleika hans til að standa undir skuldbindingum sínum. Nú á hins vegar að ná í þessa 15 milljarða og jafnvel meira til með því að auka álögur á almenning. Þetta er kannski bara hluti af því með hvaða hætti við ætlum að standa undir skuldbindingum sem verða vegna náttúruvár og ég held að það þurfi miklu meiri umræðu og miklu meiri undirbúning til að fara í þá umræðu.
Greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs til fiskvinnslufólks er atriði sem mér finnst ágætt að verið sé að skoða því að þarna hefur verið nánast um niðurgreiðslu að ræða til útgerðar (Forseti hringir.) og eðlilegt að fiskvinnslan sitji við sama borð hvað varðar greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði og allir aðrir landsmenn.
Virðulegi forseti. (Forseti hringir.) Ég er nú víst búinn með tíma minn, hefði getað talað lengur, en þetta mál fer víst til efnahags- og viðskiptanefndar þar sem ég sit og get þá haldið áfram að ræða það.