155. löggjafarþing — 5. fundur,  16. sept. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[16:46]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Mig langaði að forvitnast aðeins í þessu. Nú er það þannig að þessi svokallaði bandormur er orðinn ansi lítið annað en bara að hækka þetta og lækka þetta, hækka eitthvað smá. Það er lítið um breytingar raunverulega. Það er t.d. ekki verið að spá í það að ná í miklu meiri skatt t.d. til fyrirtækja eða þeirra sem eru ríkust heldur bara verið að „tweaka“ svona til — sennilega ekki gott íslenskt orð, afsakið, frú forseti — verið að hreyfa til um 1% og 2% hér, oftast þannig að það leggist á hinn almenna borgara en ekki þá ríkustu.

Nú veit ég að eitt af svörum flokks hv. þingmanns er bara að ganga í Evrópusambandið og taka upp evruna og þá lagast allt en mig langar að heyra aðeins frekar frá hv. þingmanni hvers konar kerfisbreytingar hann myndi vilja sjá á því hvernig við öflum tekna í ríkissjóð og hvaða áhrif það myndi hafa á fólkið í landinu ef við færum að hugsa hlutina aðeins upp á nýtt, hvernig við gerum þetta, ekki bara hreyfa hluti til um hálft prósent hér og hálft prósent þar.