breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar athugasemdir. Ég vil kannski bara nefna að á sínum tíma sat ég sem fulltrúi Landssambands íslenskra verslunarmanna í stjórn sjóðs sem hét Atvinnuleysistryggingasjóður. Hann var fjármagnaður með sértekjum, lagður á sem slíkur til að standa undir atvinnuleysisbótum og til að styðja fólk á vinnumarkaði sem þyrfti á stuðningi að halda en á einhverjum tímapunkti voru bara öll völd tekin af stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs með tilfærslu á þeim sértekjum sem sjóðurinn aflaði sér inn í ríkissjóð. Það var núverandi forsætisráðherra sem gerði það sem fjármálaráðherra. Hann hafði yfir öllum sértekjum að ráða í framhaldinu. Það breytti bara stöðunni. Þannig er það í raun og veru með allar þær sértekjur sem við höfum verið að sækja okkur gegnum alls konar álögur. Nú rennur það bara beint inn í ríkissjóð og svo kemur það út aftur í gegnum fjárlög hvers árs. Þetta er skrýtið fyrirkomulag, að við séum að ætla fjármuni í tiltekin verkefni og skattleggja borgarana um einhverjar tilteknar upphæðir til að standa straum af rekstri en svo eru þær ekki nýttar í það. Við sjáum þetta svo glöggt á Framkvæmdasjóði aldraðra, sjáum þetta mjög glöggt þar. Það að menn skuli leyfa sér að nýta fjármuni sem ætlaðir eru til byggingar undir gamalt fólk, eldra fólk, að það sé verið að leyfa sér að nýta þá peninga í rekstur er að mínu mati alger óhæfa. Við erum með varaþingmann Vinstri grænna í liði með okkur, hann segir að þetta gangi bara ekki.