155. löggjafarþing — 5. fundur,  16. sept. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[17:06]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Frú forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu mikið en hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra gerði hér grein fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2025, hinum svokallaða tekjubandormi, og eins og alltaf þegar tekjubandormurinn er til umfjöllunar í þinginu þá kennir hér auðvitað ýmissa grasa og verið að breyta ýmsum lögum. Því er mikilvægt eins og alltaf að efnahags- og viðskiptanefnd kafi nánar ofan í allar þær tillögur sem hér eru lagðar fram og skoði rækilega.

Ég ætla að byrja á gamalkunnum kunningja sem hér er fjallað um, sem mér finnst samt pínulítið leiðinlegt að við þurfum alltaf að nefna, en það er ákvæðið um samspil örorkugreiðslna almannatrygginga og lífeyrissjóða. Hér er eins og áður verið að leggja fram aðgerðir til að koma í veg fyrir að víxlverkun eigi sér stað á næsta ári. Þetta er auðvitað algjörlega nauðsynlegt að gera og sjálfsagt mál en er enn eitt af því sem þarf að leiða til lykta með framtíðarfyrirkomulagi. En að sjálfsögðu styð ég að komið verði í veg fyrir þessa víxlverkun á næsta ári.

Það eru ákvæði sem lúta að barnabótum sem eru til þess að styðja eða í raun að raungera það sem er hluti af stuðningi ríkisstjórnarinnar vegna langtímakjarasamninga á vinnumarkaði og er auðvitað hluti af því að bæta kjör barnafólks en það er eitt af því sem breyting er gerð á í þessu lagafrumvarpi.

Hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson talaði um úrvinnslugjald hér áðan og þetta er eitt af þeim atriðum sem ég tel að sé mikilvægt að nefndin kafi vel ofan í því að mér finnst mikilvægt að þeir sem menga borgi fyrir það. Það kostar að farga vörum en það er engu að síður þannig að tillögurnar sem hér eru lagðar til koma frá stjórn Úrvinnslusjóðs sem leggur til hækkun eða lækkun á úrvinnslugjöldum í samræmi við það hver kostnaður er við úrvinnslu hvers flokks fyrir sig. Þetta er eitt af þeim málum sem mér finnst mikilvægt að hafa alltaf til skoðunar vegna þess að við þurfum að draga úr neyslu og draga úr sóun.

Mér finnst líka mikilvægt að skoða mjög vel það sem lýtur að greiðslum atvinnuleysistrygginga til fiskverkafólks. Við fyrstu sýn slær þessi breyting mig bara vel, enda hef ég litið svo á að eins og þessum hlutum hefur verið fyrir komið hafi í rauninni verið um stuðning við fiskvinnsluvinnslufyrirtæki að ræða sem er umfram stuðning sem önnur fyrirtæki í landinu fá, en mikilvægt að skoða það og tryggja að staða verkafólksins, fiskvinnslufólksins, og réttindi þess séu að fullu tryggð. Við fyrstu sýn hef ég í rauninni enga ástæðu til að halda annað en að svo sé en þetta er eitt af því sem ég legg áherslu á að efnahags- og viðskiptanefnd skoði vel.

Frú forseti. Mér finnst líka mikilvægt og langar að nefna hér við 1. umræðu tvær viðbótartillögur sem mér finnst vert að verði skoðaðar í efnahags- og viðskiptanefnd. Annars vegar er það að halda áfram, líkt og gert var á síðasta ári, framlengingu á virðisaukaskattsívilnunum fyrir rafmagns- og vetnisbifhjól, létt bifhjól sem ganga fyrir rafmagni og reiðhjól. Ég hygg að kostnaðurinn við að viðhalda þessari ívilnun sé ekki ýkja mikill í hinu stóra samhengi en þetta yrði til þess að styðja við fjölbreyttari ferðamáta og væri þannig til hagsbóta fyrir samfélagið allt og liður í loftslagsaðgerðum auk þess að vera liður í því að draga úr bílaumferð á götunum sem við hér á höfuðborgarsvæðinu vitum að er mjög mikilvægt að gera.

Hitt er að mér finnst eðlilegt að skoða, og það væri þá tekjuöflunaraðgerð, lög um tekjuskatt, nr. 90/2003. Í þeim lögum er núna skattaívilnun sem nýtist ekki einungis fólki sem er að selja íbúðir sem það hefur til eignar heldur einnig við aðra og þriðju eða fleiri íbúðir sem fólk er að selja þar sem það þarf ekki að greiða tekjuskatt af söluhagnaði. Ég veit ekki heldur hverju þetta myndi skila nákvæmlega í ríkissjóð en umtalsverðu myndi ég halda. Þetta gæti verið ein af þeim leiðum sem hægt væri að fara til þess að auka öryggi fólks á íbúðamarkaði og gæti orðið til þess að íbúðarhúsnæði yrði ekki notað í gróðaskyni fyrir fólk sem á nóg af peningum og getur keypt og selt íbúðir sem það notar þó ekki sjálft til eigin búsetu. Þetta er meðal aðgerða sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur í skýrslugjöf sinni bent á að sé eitthvað sem vert er að skoða.

Mig langaði að koma þessum atriðum að hér við 1. umræðu en auðvitað er margt fleira í þessum bandormi sem efnahags- og viðskiptanefnd þarf að skoða og ég hlakka til þess að fara í þá vinnu í nefndinni.