breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Mig langar sérstaklega að þakka fyrir góð orð í tengslum við þá hugmynd að halda áfram niðurgreiðslu á reiðhjólum og ég vona að við getum unnið saman í efnahags- og viðskiptanefnd að því. Einnig er hugmyndin sem hv. þingmaður ræddi varðandi tekjuskatt á íbúðasölu eitthvað sem mér finnst vera vert að athuga og ég hlakka til að vinna með hv. þingmanni í nýrri nefnd fyrir mig, efnahags- og viðskiptanefnd, að slíkum málum.
Hv. þingmaður fjallaði einnig um Úrvinnslusjóð sem ég nefndi einmitt í minni ræðu. Það er dálítið athyglisvert að Úrvinnslusjóður virðist vera rekinn í gegnum excel-skjal sem gengur út á það að jafna út kostnað og tekjur þannig að það komi helst út á núlli. Með öðrum orðum: Það er í rauninni ekki verið að reka Úrvinnslusjóð sem tæki til þess að breyta hegðun fyrirtækja og einstaklinga heldur er einfaldlega verið að nota hann til að standa undir kostnaði. Ég hef nú búið í landi eins og Sviss þar sem t.d. var sett mjög hátt úrvinnslugjald á pappakassa og frauðplast og ýmislegt þess háttar sem gerði það að verkum að meira að segja IKEA fór að hafa öðruvísi aðferðir við að pakka inn hlutunum sínum. Mig langaði að heyra: Hvað finnst hv. þingmanni um að þetta sé bara rekið sem excel-skjal?