155. löggjafarþing — 5. fundur,  16. sept. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[17:20]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góð svör. Það er greinilegt að ég og þingmaðurinn erum sammála um alls konar hluti sem vonandi gerir það að verkum að við getum unnið vel saman í efnahags- og viðskiptanefnd. Hv. þingmaður fjallaði undir lok andsvars síns aðeins um niðurgreiðslu eða leiðir til að fá fólk til að gera frekar við hluti. Hv. þm. Andrés Ingi Jónsson hefur einmitt lagt fram frumvarp þess efnis að það séu leiðir til þess að fá endurgreitt þegar þú ferð með hluti í viðgerð til þess í rauninni að hvetja til svona hringrásarvirkni þegar kemur að því að laga hluti. Við erum orðin allt of gjörn á að bara henda, henda og henda. Mig langar að heyra hvort hv. þingmaður væri áhugasöm um að skoða það jafnvel að koma einhverju slíku að. Við vitum að frumvörp frá einstaka þingmönnum fá sjaldnast mikinn forgang hérna en ef við gætum öll sameinast um að koma einhverju svona inn í bandorminn þá held ég að margir gætu notið góðs af því.