155. löggjafarþing — 5. fundur,  16. sept. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[17:22]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég var einmitt með fyrirspurn á síðasta þingi um sambærilegt mál þar sem kom fram að í það minnsta þá var ekki verið að vinna að slíkum niðurgreiðslum. Nú hef ég ekki skoðað nákvæmlega það þingmannamál sem hv. þingmaður nefnir en mér heyrist að ég sé efnislega sammála því sem þar er lagt fram og það er einmitt þess vegna sem ég hef í fyrirspurnum verið að fjalla um slíka hluti. Ég held að það sé bara einboðið að þetta sé meðal þess sem við getum skoðað í nefndarvinnunni því að til þess að gera gott samfélag þá þarf að afla teknanna þar sem þær er að finna en að sama skapi veita ívilnanir, létta á álögum og vera með stýringu til þess að ná fram sem bestu samfélagi þar sem við getum náð fram þeim markmiðum sem við viljum og í mínum huga og okkar í Vinstri grænum er það samfélag sem byggir m.a. á jöfnuði og sjálfbærni. Ýmislegt er ágætlega gert í dag en ég held að við vitum öll að þar er hægt að gera mun betur. Endurnýtingarhugsuninni er sem betur fer að vaxa fiskur um hrygg. Við kunnum svo sannarlega hér áður fyrr að endurnýta í okkar samfélagi og við þurfum að fara aftur á þann stað.