155. löggjafarþing — 6. fundur,  17. sept. 2024.

Störf þingsins.

[13:32]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Í óundirbúinni fyrirspurn hér í þingsal 11. mars síðastliðinn spurði ég hæstv. þáverandi innviðaráðherra hvað væri að frétta af svokallaðri Hvassahraunsskýrslu. Skýrslan byggist á samkomulagi Reykjavíkurborgar og ríkisins sem var undirritað í lok nóvember 2019. Við undirritun samkomulagsins var gert ráð fyrir að skýrsluskrifin kæmu fram innan tveggja ára. Nú eru að verða fimm ár síðan skrifað var undir samkomulagið og ekkert að frétta. Ég held reyndar að allir séu komnir á þá skoðun í dag að það sé ekki raunhæft að fara í framkvæmdir í Hvassahrauni vegna þeirra eldsumbrota og jarðhræringa sem hafa átt sér stað á Reykjanesi síðustu ár. Gosin eru orðin níu á síðustu 42 mánuðum eða svo og flestir eru held ég komnir á þá skoðun að þetta sé óraunhæft, að hugmyndin sé ekki raunhæf. Síðan þessi óundirbúna fyrirspurn við hæstv. innviðaráðherra kom fram í mars hefur gosið þrisvar sinnum í samtals 93 daga, um helming tímans af þeim rúmu 180 dögum síðan spurt var.

Það má öllum vera ljóst að Reykjavíkurflugvöllur mun gegna mikilvægu hlutverki næstu árin og áratugina í tengslum við þessa stöðu sem upp er komin sem helsta samgöngumiðstöð innan lands og varaflugvöllur. Hann er geysilega mikilvægur í tengslum við sjúkraflug í landinu, rúmlega 900 sjúkraflug voru farin á síðasta ári með hátt í 1.000 sjúklinga, og er einnig mikilvægur fyrir almannavarnir landsins.

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar í morgun óskaði ég eftir minnisblaði frá Samgöngustofu varðandi samskipti við Reykjavíkurborg um trén í Öskjuhlíðinni, sem er annað tengt mál og verður fróðlegt að sjá hvernig það gengur. Hv. þingmenn sem hér eru muna eftir því að Samgöngustofa sendi Reykjavíkurborg bréf 27. maí (Forseti hringir.) á þessu ári og gaf borginni frest til 2. september að ganga frá þessu máli þannig að þetta væri ekki að skemma fyrir aðflugi og öðru í tengslum við rekstur flugvallarins.