155. löggjafarþing — 6. fundur,  17. sept. 2024.

Störf þingsins.

[13:43]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Þessi þingvetur fer nú eiginlega ekkert sérstaklega vel af stað eftir þingsetningu í síðustu viku. Það fer ákaflega lítið fyrir stjórnarmálum hér í þinginu að undanskildum fjárlagafrumvarpinu sem mun lítið gera til að lina þjáningar fólks og fyrirtækja vegna hárrar verðbólgu og íslensku ofurvaxtanna. Í stað þess að vera tilbúin í þingvetur með raunverulegar aðgerðir fyrir fólk og fyrirtæki ber mest á ósættinu sem er auðvitað ekki nýtt en það er óvenjunöturlegt að þessu sinni. Algjörlega óháð því hvaða skoðun menn og flokkar hafa á hælisleitendamálum þá hljótum við öll að fordæma að langveikt barn í hjólastól sé peð og fórnarlamb átaka við ríkisstjórnarborðið. Atburðarásin sem hefur birst okkur síðasta einn og hálfan sólarhringinn er engum til sóma og hún er beinlínis ógn við heilsu Yazans Tamimi. Hann þarf á umönnun og aðstoð að halda en ekki þeim hringlandahætti sem við höfum séð að undanförnu. Stjórnmálin á Íslandi verða að komast upp úr skotgröfunum þegar fólk, eða barn í þessu tilviki, er í sérstaklega viðkvæmri stöðu og á allt sitt undir. Um þetta hljótum við að geta sammælst.

Þetta var ekki góð stjórnsýsla, sagði hæstv. dómsmálaráðherra í gær. Það er rétt. En við skulum ekki bara nota kerfistungumál þegar við lýsum þessu. Þetta er ómannúðlegt, þetta er óverjandi algjörlega óháð því hvaða skoðun við höfum á hælisleitendum og því regluverki öllu. Í þetta ósætti fer öll orka stjórnarflokkanna á sama tíma og brýn hagsmunamál ná ekki einu sinni hingað inn í þingið á síðasta þingvetri kjörtímabilsins. Hér ríkir málaþurrð stjórnarflokkanna. Við ættum auðvitað að vera að ræða raunverulegar aðgerðir vegna verðbólgu og vaxta og biðlista heilbrigðiskerfisins sem lengjast frekar en hitt. Alvarlegum vanskilum fjölgar hratt samkvæmt fréttum nýverið og það væri meiri reisn yfir því að takast á við þau knýjandi verkefni frekar en að æðsta stjórn ríkisins birtist okkur með þeim endemum sem verið hefur undanfarinn sólarhring.