Störf þingsins.
Forseti. Um hvað snýst pólitík þegar allt kemur til alls? Stjórnarskráin svarar því á mjög einfaldan hátt. Hlutverk okkar þingmanna er að fylgja sannfæringu okkar, í rauninni samvisku þegar allt kemur til alls. Við samþykkjum hérna lög af því að við trúum því að þegar við samþykkjum lögin þá sé það góð ákvörðun fyrir samfélagið. En stundum gerist það þannig að kerfið brestur á einhvern hátt. Þá á það að vera okkar hlutverk að segja: Nei, það var ekki þetta sem við meintum þegar við settum lögin, við ætluðumst ekki til þess að þetta yrði útkoman og af því að það er sannfæring okkar eða samviska okkar sem segir til um það þá bregðumst við við því og gerum eitthvað í því. Mér finnst þetta áhugavert í samhengi málanna sem eru að gerast núna og líka þess sem umboðsmaður Alþingis kom fram með fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd núna á mánudaginn, þar sem var verið að fjalla um pólitíska ábyrgð og pólitísk afskipti. Það voru tekin dæmi um ráðningar ráðuneytisstjóra sem í raun og veru líta út fyrir að vera pólitískar þegar allt kemur til alls en ekki faglegar. Þessi blöndun á faglegri og pólitískri stjórnsýslu er einhvern veginn að grafa undan öllum trúverðugleika þess að fagleg stjórnsýsla sé að sinna starfi sínu af heilindum en ekki af pólitískum, flokkspólitískum ástæðum.
Það hefur verið kallað eftir úttekt með tilliti til barnasáttmálans vegna málsins sem er hérna í gangi, hjá Yazan. Ég held að það sé ekki búið að gera þá úttekt þrátt fyrir að það sé verið að fara í þvingaðan brottflutning. Ráðherra viðurkennir lögbrot á sama tíma. Þetta er eitthvað skrýtið. Ég veit ekki hvort ég get komið því nægilega vel á framfæri í hvernig skapi umboðsmaður Alþingis var þarna á fundinum á mánudaginn. (Forseti hringir.) Hann var ekki í góðu skapi, við getum orðað það þannig á léttúðugan hátt, því að (Forseti hringir.) ástandið er satt best að segja ekki einskorðað við þetta eina mál heldur er þetta orðið kerfislegt.