155. löggjafarþing — 6. fundur,  17. sept. 2024.

Störf þingsins.

[13:53]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil minna okkur á að okkur ber að fara að stjórnarskrá og okkur ber að fara að samvisku okkar og sannfæringu. Við erum hér úr þessum stóli að benda í austur og vestur og suður og norður á allt sem okkur þætti að betur mætti fara. Minni ég þá á að þrír fingur snúa að okkur sjálfum. Hér væri okkur hollt að láta gera faglega úttekt á störfum okkar, hæstv. forseti, og fá vingjarnlegar ábendingar um það sem betur mætti fara í störfunum. Til að mynda er samkvæmt stjórnarskrá okkur skylt að hafa skýra aðgreiningu á löggjafarvaldi og framkvæmdarvaldi og dómsvaldi. Er það virkilega svo að við fylgjum því? Ég dreg það stórlega í efa.

Það er á ábyrgð okkar allra, en einkum þó sitjandi ríkisstjórnar, að hér hafi verið fyrir þremur árum samþykkt af öllum sitjandi þingmönnum í atkvæðagreiðslu að hér skyldi umsjónarmaður aldraðra vera skipaður og hann löngu tekinn til starfa. Ekki hefur það gengið eftir og við berum ábyrgð á því. Ég bið hæstv. forseta að fylgja eftir því sem ég hér nefni vegna þess að við erum í húsi frá 1881 og við erum að reyna að halda í hefðir og reyna að halda virðingu þingsins og allt þetta.

Ég vil óska þess líka að maður geti lesið sínar ræður bara af skjá eins og maður gerir í öllum sölum þar sem maður fer og talar opinberlega í staðinn fyrir að maður þurfi að horfa á kollvik, skallabletti og í rauninni alls ekki í augun á þeim sem eru að tala til þjóðarinnar hverju sinni. Ég hef nefnt þetta áður. Þetta er bara spurning um vilja, vilji er allt sem þarf. Ég bið um það líka að við látum nú þau þingmál minni hlutans fara í alvörumeðferð og -ferli því að engin stjórnarmál hafa birst enn þá. Bretar hafa 20 mál á hverju ári sem eru dregin út sem fara í alvöruvinnslu. Látum ekki helming sitjandi þingmanna vinna fyrir gýg ár eftir ár.