155. löggjafarþing — 6. fundur,  17. sept. 2024.

Störf þingsins.

[13:57]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Herra forseti. „Yazan á að fá efnismeðferð,“ segir einn ráðherra. „Ákvörðun um brottvísun stendur,“ segir annar. „Litlar líkur til að þessi drengur verði fluttur burt,“ segir sá þriðji. Og á meðan bíður lítill langveikur strákur á sjúkrahúsi milli vonar og ótta. Hann hrekkur í kút í hvert skipti sem einhver kemur inn í herbergið, eyðilagður eftir atburði síðustu sólarhringa og síðustu mánaða, eftir að hafa verið vakinn um miðja nótt, rifinn á fætur og látinn dúsa í sjö klukkustundir í varðhaldi á Keflavíkurflugvelli áður en brunað var með hann til baka vegna þess að það átti að ræða málið hans á ríkisstjórnarfundi. Og nú tala ráðherrar út og suður. Þau keppast við að slá sig til riddara, hvert á sínum forsendum, en eftir situr drengurinn og fjölskyldan í algerri óvissu.

Virðulegi forseti. Það er komið nóg af þessu. Drengurinn og fjölskylda hans sem hafa orðið leiksoppur í einhverju pólitísku leikriti verða að fá fullvissu um það, virðulegur forseti, heilsu drengsins vegna, frá stjórnvöldum að hann sé óhultur á sjúkrahúsi, að hann fái að njóta öryggis á sjúkrastofnun eins og gildir almennt um sjúklinga og þeim er tryggður réttur til, að þar fái drengurinn að hvílast næstu daga eftir þessar raunir án þess að þurfa að óttast að martröðin endurtaki sig. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)