almenn hegningarlög.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingar á almennum hegningarlögum, með öðrum orðum, samfélagsþjónustu ungra brotamanna. Flutningsmenn eru þingmenn Samfylkingarinnar auk Sigmars Guðmundssonar í Viðreisn. Í 1. gr., á eftir 57. gr. laganna, kemur ný grein, 57. gr. b, svohljóðandi:
„Þegar aðili er ungmenni á aldrinum 15–21 árs er heimilt að ákveða í dómi að setja sérstakt skilyrði um samfélagsþjónustu fyrir frestun fullnustu refsingar skv. 57. gr. Í dómi skal tiltaka tímafjölda og á hve löngum tíma samfélagsþjónustan skuli innt af hendi. Tímafjöldi samfélagsþjónustu skal minnst vera 40 klukkustundir og mest 480 klukkustundir. Forsenda þess að slík samfélagsþjónusta komi til álita er að aðili teljist hæfur til samfélagsþjónustu á grundvelli athugunar á persónulegum högum hans og að aðili afpláni ekki fangelsisrefsingu eða sæti gæsluvarðhaldi.
Samfélagsþjónusta er bundin eftirfarandi skilyrðum:
1. Að aðili hljóti ekki kæru fyrir refsiverðan verknað á þeim tíma sem samfélagsþjónusta er innt af hendi.
2. Að aðili sæti umsjón og eftirliti Fangelsismálastofnunar eða annars aðila sem hún ákveður þegar samfélagsþjónusta er innt af hendi.
Auk skilyrða 3. mgr. má ákveða að samfélagsþjónusta verði bundin eftirfarandi skilyrðum:
1. Að aðili hlíti fyrirmælum umsjónaraðila um dvalarstað, nám, vinnu, umgengni við aðra menn og iðkun tómstundastarfa.
2. Að aðili neyti hvorki áfengis né ávana- og fíkniefna“ á meðan samfélagsþjónustu stendur.
„Heimilt er að krefjast þess að aðili undirgangist rannsókn á öndunarsýni eða blóð- og þvagrannsókn til að athuga hvort hann hafi rofið skilyrði 2. tölul. 4. mgr. Synjun aðila á slíkri rannsókn gildir sem rof á skilyrðum í samfélagsþjónustu. Um rof á skilyrðum samfélagsþjónustu gildir 59. gr., en sé rof á skilyrðum hennar eða brot hvorki alvarlegt né ítrekað má veita áminningu.“
Markmið frumvarpsins er að hægt verði að veita ungum brotamönnum meira aðhald og þannig koma í veg fyrir að þeir leiðist frekar út á braut frekari afbrota. Í þessu augnamiði er lagt til að dómarar fái heimild til að ákveða í dómi að setja viðbótarskilyrði fyrir skilorðsbundinni frestun á fullnustu refsingar skv. 57. gr. almennra hegningarlaga í formi samfélagsþjónustu þegar um er að ræða ungmenni á aldrinum 15–21 árs. Með því móti mætti nýta samfélagsþjónustu fyrir þennan aldursflokk þegar dómari metur það svo að skilorðsbundinn dómur án samfélagsþjónustu nægi ekki til að leiða viðkomandi inn á brautir löghlýðni. Hætt er við því að núverandi fyrirkomulag verði til þess að dómarar dæmi ungmenni ítrekað í skilorðsbundið fangelsi og veigri sér við því að dæma þau til óskilorðsbundinnar refsingar og þegar til afplánunar kemur hafi langur skilorðstími safnast upp.
Á Íslandi hefur dómari einungis það úrræði, í mörgum málum, að dæma fólk í fangelsi, skilorðsbundið eða óskilorðsbundið. Maður sem er dæmdur í allt að 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi getur hins vegar sótt um það til Fangelsismálastofnunar að afplána heldur með samfélagsþjónustu, sbr. 37. gr. laga um fullnustu refsinga. Það er sem sagt á valdi stjórnvalds að ákveða hvort maður sem er dæmdur í fangelsi afplánar það frekar með samfélagsþjónustu eða ekki.
Við þetta eru ýmsir ókostir. Í fyrsta lagi er vafamál hvort þetta uppfylli skilyrði stjórnarskrárinnar um þrígreiningu ríkisvaldsins, að stjórnvald breyti nýuppkveðnum dómum dómsvaldsins. Í öðru lagi hefur það sjónarmið komið fram í skrifum fræðimanna að óvíst sé hvort núverandi fyrirkomulag uppfylli kröfur stjórnarskrárinnar um skýrleika refsiheimilda og að réttaröryggi almennings væri betur tryggt með því að dómstólar kveði á um útfærslu refsinga. Í þriðja lagi, og kannski ekki síst, er þetta afar ógagnsætt. Ákvarðanirnar eru ekki birtar, eins og dómar, og því geta dómþolar ekki áttað sig á því hvort þeir njóti jafnræðis við aðra í svipaðri stöðu. Vegna þessa ógagnsæis geta verjendur hvorki upplýst skjólstæðinga sína nægilega, við meðferð máls, um hvers þeir geta vænst né byggt málatilbúnað sinn upp með þetta úrræði í huga.
Þau rök er lúta að þrígreiningu ríkisvalds og ógagnsæi eiga reyndar við um alla sem dóm hljóta, ekki einungis ungmenni. Eigi að síður er lagt til að byrjað verði á að heimila dómara að setja þetta skilyrði fyrir frestun refsingar að því er ungmenni varðar, en eðlilegt að Alþingi skoði í framhaldinu einnig hvort þetta ætti að vera almennt úrræði.
Samfélagsþjónusta felur í sér tímabundið ólaunað starf í þágu samfélagsins, svo sem líknar- eða félagsstarf ýmiss konar, sem er unnið utan vinnutíma dómþola þannig að hann geti stundað atvinnu sína eða nám á meðan og verið virkur þjóðfélagsþegn. Þetta úrræði er sjaldnast nýtt þegar kemur að ungum brotamönnum vegna þeirrar stefnu sem hefur verið mörkuð að samfélagsþjónusta teljist fullnustuúrræði sem komi einungis til skoðunar í tilviki óskilorðsbundinna dóma samkvæmt lögum um fullnustu refsinga, nr. 15/2016. Óskilorðsbundnir dómar eru hins vegar almennt ekki kveðnir upp yfir yngstu brotamönnunum, enda þrautalending, og er einungis beitt í þeim málum þar sem talið er óverjandi með tilliti til almannahagsmuna og réttaröryggis að beita skilorðsbundnum dómi.
Það er ljóst að samfélagsþjónusta getur verið heppilegri en óskilorðsbundinn fangelsisdómur fyrir unga afbrotamenn ásamt því að hafa mögulega verulegt uppeldislegt gildi. Úrræði samfélagsþjónustunnar getur haft varnaðaráhrif fyrir ungmenni sem og tækifæri til þess að ná til þeirra sem leiðst hafa á braut afbrota. Þannig skapast tækifæri til að hafa eftirlit með ungum dómþolum og gera tilraun til að hafa jákvæð áhrif á viðkomandi. Þessu verður ekki komið við með dómi sem ekki er bundinn þessu skilyrði. Mikilvægt er að tryggja að slíkur valkostur sé til staðar fyrir dómstóla landsins í málum sem varða unga brotamenn. Slíkt væri í samræmi við þróun á Norðurlöndum þar sem aukin áhersla hefur verið lögð á úrræði til að hvetja ungmenni til góðrar hegðunar, til að axla ábyrgð á gjörðum sínum og leiða unga brotamenn aftur inn á brautir löghlýðni með margs konar stuðningi og eftirfylgni.
Samfélagsþjónusta var fyrst lögfest með lögum um samfélagsþjónustu, nr. 55/1994. Um var að ræða tilraunatímabil og var ákveðið að samfélagsþjónusta yrði ákvörðuð af stjórnvöldum sem fullnustuúrræði. Í athugasemdum við frumvarpið kom fram að ef ákveðið yrði að samfélagsþjónusta fengi varanlegan sess síðar kæmi vel til álita að fella ákvæði um hana inn í almenn hegningarlög og tekið fram að víðast erlendis væri dómstólaleiðin farin. Samfélagsþjónusta telst enn til fullnustuúrræðis hér á landi og er ákvörðunartaka og eftirlit á forræði Fangelsismálastofnunar samkvæmt lögum um fullnustu refsinga. Með frumvarpi þessu er ekki ætlunin að breyta þessu almenna fyrirkomulagi heldur einungis að bæta þessu úrræði við möguleika dómara í málum er varða unga brotamenn sem þurfa meiri leiðbeiningu og aðhald en hefðbundin skilorðsbundin refsing veitir. Sú afmarkaða nálgun felur hins vegar ekki í sér að samfélagsþjónusta muni hér eftir teljast til sjálfstæðrar viðurlagategundar líkt og í mörgum nágrannaríkjum okkar. Slík umræða verður að bíða um sinn, en um nánari upplýsingar um það álitaefni vísast til 647. máls sem lagt var fram á 133. löggjafarþingi en hlaut ekki framgang.
Herra forseti. Það er gert ráð fyrir að Fangelsismálastofnun sjái um framkvæmd og fullnustu samfélagsþjónustu af þessu tagi líkt og almennt gildir. Það felur í sér að Fangelsismálastofnun sér um að finna vinnustaði sem hæfa ungum aldri brotamanns. Almennt er aðallega um að ræða líknar- og félagsstörf hjá félagasamtökum eða opinberum stofnunum. Eftirlitið felst í því að fulltrúi frá Fangelsismálastofnun fer jafnan á vinnustaðinn og fylgist reglulega með framvindu mála ásamt því að kalla viðkomandi aðila til viðtals eftir atvikum. Þar sem markmið frumvarpsins er að veita aukið aðhald er mikilvægt að eftirlitið sé markvisst og að gripið sé til viðeigandi úrræða eins fljótt og verða má virði hinn ungi brotamaður ekki þau skilyrði sem í dómi felast og sinni ekki samfélagsþjónustu sem skyldi. Við minni háttar rof á skilyrðum má veita áminningu en ella fer um slík tilvik eftir ákvæðum 59. eða 60. gr. almennra hegningarlaga og væri það þá í höndum dómara að meta hvort samfélagsþjónusta teldist fullreynd og eftir atvikum gera viðeigandi breytingar varðandi fullnustu refsinga.
Í frumvarpinu er fjallað um einstakar greinar frumvarpsins sem er ekki ástæða til að orðlengja hér en áhugasamir geta kynnt sér það á vef Alþingis. Að þessari umræðu lokinni legg ég til að málið gangi til allsherjar- og menntamálanefndar.