vísitala neysluverðs.
Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um vísitölu neysluverðs, nr. 12/1995 (vísitala neysluverðs án húsnæðis). Með mér á frumvarpinu er þingflokkur Flokks fólksins. Við buðum reyndar engum fleirum að vera með á þessu frumvarpi vegna þess að hingað til hefur það í rauninni ekki haft neitt upp á sig. Ég hef mælt fyrir þessu frumvarpi hér ár eftir ár og er nú að koma með það eina ferðina enn óbreytt. Í 1. gr. frumvarpsins segir, með leyfi forseta:
„Á eftir 2. málsl. 1. mgr. 1. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Ekki skal taka tillit til húsnæðiskostnaðar við útreikning vísitölu neysluverðs.“
2. gr.:
„Lög þessi öðlast þegar gildi.“
Eins og ég sagði hér í upphafi kemur það fram í greinargerð að þetta frumvarp hefur ítrekað verið lagt fram á Alþingi Íslendinga en ekki náð fram að ganga og þar af leiðandi er ég að leggja það fram að nýju óbreytt. Frá því í desember árið 2021 hefur verðbólga mælst yfir 5% á ársgrundvelli. Frá miðju ári 2022 til sumarsins 2023 mældist verðbólga í kringum 10% samkvæmt vísitölu neysluverðs. Hún hefur lækkað síðan þá en engu að síður mælist verðbólga langt yfir verðbólgumarkmiðum Seðlabanka Íslands. Hækkandi húsnæðisverð hafði töluverð áhrif á þá verðbólgu sem við höfum glímt við undanfarin ár en verðbólga samkvæmt vísitölu neysluverðs án húsnæðisliðar mælist iðulega tveimur til þremur prósentustigum lægri en samkvæmt hefðbundinni vísitölu neysluverðs eins og við búum við núna.
Það hefur ítrekað komið fram í ræðum og riti að verðbólga á Íslandi í dag mældist 3,6% ef húsnæðisliðurinn væri tekinn út úr neysluvísitölu þannig að það mætti kannski segja að við værum þá a.m.k. að elta skottið á þeim samfélögum og þjóðum í kringum okkur sem hafa raunverulega náð valdi á verðbólgunni. Eina meðalið sem við höfum boðið landsmönnum upp á hér eru stýrivaxtahækkanir og að henda allri ábyrgð á Seðlabanka Íslands. Þessi ríkisstjórn henti inn handklæðinu strax í kjölfarið á Covid-faraldrinum, fyrir utan það að í Covid-faraldrinum vissu þau náttúrlega ekki hvort þau ættu að koma eða fara og settu ábyrgðina náttúrlega á hið svokallaða þríeyki, sælla minninga, en tóku í rauninni engar ákvarðanir sjálf. Það er sama sagan með þetta. Núna loksins, öllum þessum árum seinna, eftir að ég byrjaði í rauninni að mæla fyrir því að við tökum þennan húsnæðislið út úr neysluvísitölunni, sem hvergi annars staðar þekkist í heiminum í því formi sem við gerum það, virðist vera að rofa til. Hér kom hæstv. forsætisráðherra upp í sinni stefnuræðu í síðustu viku og nefndi það nefnilega að staðreyndin væri sú að verðbólgan væri 3,6% án húsnæðisliðar í neysluvísitölunni og svo hafa fleiri hæstv. ráðherrar talað úr þessum æðsta ræðustóli landsins sem og margir og flestir þeir virtu hagfræðingar sem við höfum litið upp til sem hafa í rauninni tjáð sig um stöðuna og hvernig mögulega mætti ganga inn í þessa viðvarandi verðbólgu og slá á hana með einu á kjaftinn, sem er nákvæmlega það sem við myndum gera ef við tækjum húsnæðisliðinn út úr neysluvísitölunni.
Staðreyndin er sú að löggjafanum er í lófa lagið strax í dag, strax á morgun og hefði verið fyrir langa löngu síðan, að fjarlægja þennan húsnæðislið út úr vísitölunni sem í raun og veru er ævinlega birtur mánaðarlega af Hagstofu Íslands. Hún birtir í rauninni verðbólguna bæði með og án húsnæðisliðar en við — eða ekki ég náttúrlega, alls ekki, en alla vega þessi stjórnvöld hafa kosið að mælingin með húsnæðislið sé látin gilda. Þannig er það líka að ef við teldum í raun og veru á einhverjum tímapunkti að það væri nauðsynlegt að koma með þetta furðuverk, húsnæðisliðinn, aftur inn í vísitölu þá gildir nákvæmlega það sama. Löggjafanum væri í lófa lagið á einum degi að græja það í orðsins fyllstu merkingu.
Það hlýtur að liggja í hlutarins eðli að við, almenningur og fólkið í landinu getur ekki lokað augunum fyrir því að eitthvað stórfurðulegt hefur verið að eiga sér stað hér í fjármálaheiminum og í allri peningastefnu okkar landsmanna. Það er alveg með hreinum ólíkindum strax hérna 2020 þegar við hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson förum að spyrja hæstv. þáverandi fjármálaráðherra, Bjarna Benediktsson, og hæstv. þáverandi forsætisráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, ítrekað eftir því hvað þau hefðu hugsað sér að gera, hæstv. ríkisstjórn, til að setja belti og axlabönd á heimili landsins þegar var í rauninni algerlega augljóst að allur farvegur verðbólgu væri handan við hornið og við myndum fara að taka á okkur verðbólgu eins og raunin var. Við fengum náttúrlega bara góðlátlegt bros. Við þurftum ekki að hafa áhyggjur. Hér var allt frábært. Ef eitthvað væri að marka hagspár og annað slíkt væri hér hreinlega viðvarandi lágvaxtaumhverfi og engin ástæða til að ímynda sér að við værum að fá einhverja verðbólgu í fangið. Þetta var fyrir fjórum árum síðan. Þá var verðbólgan ríflega 2%. Hins vegar hefur allt gengið eftir sem þessi kona mælti í þessum æðsta ræðustóli landsins. Það hefur allt gengið eftir og líka það að ríkisstjórnin hefur ekki og á engum tímapunkti axlað ábyrgð, tekið á vandanum og sýnt að hún væri hæf til að sinna þeim störfum sem hún var valin til að vinna. Útkoman er augljós, er það ekki? Eins og kom fram í ræðu minni við stefnuræðu hæstv. forsætisráðherra í síðustu viku þá er vöxtur á skuldum heimilanna, alvarlegum skuldum heimilanna, við skulum taka eftir því, milliinnheimtufyrirtækið Motus gaf það út nákvæmlega um miðja síðustu viku, þegar ég er að halda hér ræðu mína við stefnuræðu forsætisráðherra, að alvarlegar skuldir heimilanna hefðu vaxið um 20,1%. Á þessu tímabili sem við erum að horfa til þegar við lítum um öxl og sjáum hvernig ríkisstjórnin hvatti til fjárfestinga, hvatti fólk til að kaupa sér þak yfir höfuðið — nú var lag. Nú er lag, unga fólk. Nú er lag, leigjendur. Ef þið hafið áhuga á því að reyna að eignast þak yfir höfuðið og ykkar eigið húsnæði þá er núna tækifæri í því lágvaxtaumhverfi sem þessi ríkisstjórn státaði af að hafa skapað okkur til framtíðar. Nú var lag.
En hvaða lag er sungið í dag? Ekki bara það að skuldir heimilanna séu í rauninni að fara vaxandi og það alvarlegar skuldir heldur sama dag og Motus gefur þetta út þá hækkar Arion banki vexti sína á verðtryggðum lánum, sem var eina úrræðið sem hægt var að vísa fólki í sem hafði ekki verið með verðtryggð lán, sem hafði verið með óverðtryggð lán með mismunandi löngum tíma, óbreytilegum. Þannig að útkoman er nákvæmlega þessi, það liggur algerlega alfarið á borðinu: Arion banki hækkar vextina um 12–15%, kemur vöxtum á verðtryggðum lánum í 4,64% annars vegar og 4,74% hins vegar. Gerir fólk sér grein fyrir hvað það þýðir raunverulega að vera með 4,64% og 4,74% vexti á verðtryggð lán? Jú, það eru vextirnir sem við greiðum þegar við erum að greiða afborgun af láninu. En hvað verður um allt hitt? Dettur einhverjum í hug að þeir hafi gleymt verðbólgustiginu sem nú hefur verið að lafa hér allt upp í 10% og er nú í kringum 6%? Nei, það bætist einfaldlega við höfuðstól lánsins. Það bara étur niður eignarhlutann sem hæstv. fyrrverandi fjármálaráðherra og fleiri hæstv. ráðherrar hafa ítrekað verið að benda á, sjáið þið hvað fasteignirnar ykkar hafa hækkað í verði, sjáið þið landslagið sem við höfum búið ykkur, kæra þjóð, farið nú og innleysið þennan hagnað og seljið þakið ofan af höfðinu og flytjið eitthvert út á stétt, eða kannski getið þið fengið tjald einhvers staðar á góðu verði. Eru þetta skilaboðin sem er verið að senda út í samfélagið? Er verið að segja okkur að af því bara fasteignaverð í þessari óðaverðbólgu og þessu vaxtaokursbrjálæði sem er að ríða röftum í samfélaginu, að þeir séu að segja: Heyrðu, þú getur bara innleyst hagnaðinn af fasteigninni þinni, góði maður, góða fjölskylda. Taktu peningana þína, þú þarft ekkert að kaupa þér aðra eign, búðu bara úti á götu. Eru þetta skilaboðin? Ég get ekki séð neitt annað því það er algjörlega ljóst að þegar einstaklingur og fjölskylda á bara aðeins einn íverustað til þess að búa á, eina friðhelgi, eitt heimili, þá vill enginn selja hana ofan af sér nema nauðsyn krefji. Það er enginn að fara að innleysa einn eða neinn hagnað. Það er enginn að græða á þessari óráðsíu ríkisstjórnarinnar og þessu óhæfi þessarar ríkisstjórnar, enginn. Við erum öll að tapa. Samfélagið er allt að tapa og það eru stórkostlegustu fjármagnsflutningar Íslandssögunnar sem eiga sér nú stað um hábjartan dag í boði þessarar ríkisstjórnar, frá vinnandi stéttum í landinu, frá fátæku fólki í landinu, frá unga fólkinu í landinu, frá litlum og meðalstórum skuldsettum fyrirtækjum í landinu. Þetta á allt að setja í fangið á græðgiskjafti bankanna sem aldrei græða nóg.
En eins og ég hef bent á er ítrekað búið að tala um að það sé stórkostlega til bóta að losna við húsnæðisliðinn út úr vísitölunni. Hér, herra forseti, er ég að mæla fyrir frumvarpi sem kveður á um að þessi húsnæðisliður verði ei lengur hafður í hávegum við útreikninga á vísitölu, þannig að við skulum sjá hvað er að marka stóru orðin, hvað er að marka það þegar verið er að láta ýja að því: Sjáið þið til, kæru landsmenn, við erum alveg að hugsa um að koma til móts við ykkur. Við erum alveg að hugsa um að það sé alveg nógu langt gengið að ungt fólk sem er að kaupa sér þak yfir höfuðið og var að borga hér 185.000 kr. af 45 millj. kr. láni eða 40 millj. kr. láni sé nú farið að greiða á fimmta hundrað þúsund fyrir sama lán. Foreldrarnir eru að reyna að vinna í tveimur og þremur vinnum, hvað á að gera við börnin? Hvað verður um börnin þegar verið er að reyna að berjast fyrir því að hafa þak yfir höfuðið og gefa þeim mat á diskinn, þegar verið er að reyna að fæða þau og klæða þau og gefa þeim heimilislegt öryggi, þegar verið er að reyna að koma fjölskyldueiningunni þannig fyrir að öllum í fjölskyldunni geti liðið vel? En er það svo? Nei. Hér hefur þessi ríkisstjórn rekið andfjölskylduvæna stefnu frá því að ég steig inn á Alþingi Íslendinga.
Það er svo gjörólíkt að ætla að líkja saman því sem við erum að upplifa hér í okkar samfélagi og því sem við sjáum t.d. í Lúxemborg eða í Sviss eða fleiri löndum þar sem við höfum fengið skýrslur, bæði frá velferðarvaktinni og fleiri ágætum aðilum eins og Kolbeini Stefánssyni og fleirum sem hafa verið að koma hér með úttektir og skýrslur um það hversu mikill munur það er að vera fjölskylda í þessum löndum sem ég nefni eða að þurfa að berjast fyrir lífi sínu og barnanna sinna á Íslandi í dag. Staðreyndin er einfaldlega sú að hér líður engum vel nema einstaklingi á ofurlaunum og meira að segja þeir sem eru vel yfir millitekjum og eru skuldsettir ná ekki endum saman, meira að segja þeir sem áður var sagt að hefðu það þokkalegt ná ekki endum saman í dag.
Það var athyglisvert að horfa á þessi fjárlög, þessa kerfisbreytingu sem var nú aðalkerfisbreyting fjárlaganna þar sem segir að eigi að fara að koma kílómetragjaldi á alla bensín- og dísilbíla. Hverjir skyldu keyra eldgamla bensín- og dísilbíla? Það eru þeir sem geta ekki einu sinni með nokkru lifandi lífsins móti fengið yfirdrátt, tekið lán eða keypt sér öðruvísi bíl. Það eru þeir sem eiga ekki fyrir mat á diskinn þegar fyrsti hvers mánaðar er liðinn vegna þess að öll greiðslan sem þeir fá fer í að reyna að halda þaki yfir höfuðið, annaðhvort í okurleigunni sem er að ríða röftum eða í þessu óheyrilega vaxtaokri sem við erum að glíma við í dag. Það er með hreinum ólíkindum að ekkert skuli vera aðhafst, ekki neitt. Við í Flokki fólksins vildum að ríkisstjórnin kæmi saman í sumar og tæki á því neyðarástandi sem ríkir í landinu, stöðvaði þessa þróun áður en heimili landsmanna fara unnvörpum undir fallöxina, undir uppboðshamarinn eins og var gert hér í efnahagshruninu 2008. Við í Flokki fólksins viljum ekki sjá aðra eins holskeflu af hryllingi yfir fjölskyldum og heimilum landsins eins og þáverandi ríkisstjórn bauð upp árið 2008.
Það er algjört grundvallaratriði að þetta frumvarp fengi hraðferð í gegnum þingið. Það væri hægt að afgreiða það á einum degi eins og ég segi, við höfum sýnt það og sannað að þrátt fyrir að frumvörp þurfi almennt að fara í gegnum þrjár umræður þá þarf bara samstöðu á Alþingi Íslendinga. Við hittumst hér í hliðarherbergi, nefndir þeirra mála sem taka utan um hvert mál fyrir sig, nefndin kemur saman, samþykkir að setja málið í 2. umræðu, forminu er fylgt hér í þingsal, þingfundi er slitið og nýr þingfundur settur og aftur hittumst við og 3. umræða á sér stað og skömmu síðar er atkvæðagreiðsla um málið og á örfáum stundum þann daginn er búið að afgreiða málið. Hvaða afleiðingar hefði það ef það væri raunverulegur vilji ríkisstjórnarinnar til að taka húsnæðisliðinn út úr vísitölunni? Það hefði þær afleiðingar að skömmu síðar væri verðbólga hér 3,6%, hefði þær afleiðingar að við værum búin að þröngva Seðlabankanum — sem hefur engar aðrar úrlausnir en að þröngva okkur inn í þetta okurstýrivaxtakerfi sitt — til að lækka stýrivexti.
Og hvað myndi þetta þýða í sambandi við bankana? Gætu þeir haldið áfram að okra svona á okkur og mergsjúga okkur algerlega inn að beini? Nei, þeir gætu það ekki, þeir yrðu að fara að lækka vexti. Það er sú framtíð sem Flokkur fólksins er búinn að reyna að byggja undir frá því að við komum á Alþingi Íslendinga, að styrkja hina félagslegu stöðu almennings og allra í landinu okkar þannig að okkur geti öllum liðið vel. Það þarf ekki að vera komið til þessa ófremdarástands í samfélaginu sem raun ber vitni. Það þyrfti ekki að búa við svona vaxtaokur og hrylling sem raun ber vitni ef þessi ríkisstjórn vissi hvort hún væri að koma eða fara.
Það eina sem við þurfum að vita er að allt það sem við erum að ganga í gegnum í dag er mannanna verk. Það þýðir ekki fyrir ríkisstjórn að koma hér og segja: Þetta er alveg að koma, þetta er allt að koma, þetta reddast allt, vegna þess að það er ekki alveg að koma. Það er ekki alveg að koma fyrr en það er komið, er það? Það er ekki að reddast fyrr en það er alveg komið, þannig að þetta nýja slagorð Framsóknarflokksins um að þetta sé alveg að koma, eins og fyrir síðustu kosningar, er ekki bara best að kjósa Framsókn? Ég held að við brosum bara í kampinn og fleygjum því í ruslið. Við tökum ekki mikið mark á því, er það?
Hér státar ríkisstjórnin af því að hækka húsnæðisbætur og barnabætur og örorkulífeyriskerfið sé að koma alveg frábærlega sterkt inn þrátt fyrir að þeir láti öryrkjana greiða fyrir kjarapakka ríkisstjórnarinnar sem þau grobba líka af. Heyrðu, já, þau lækkuðu skattana hjá mér líka. Ég hérna, á ofurlaunum: Heyrðu, þeir lækkuðu líka skattana mína. Það var ekki bara verið að lækka skatta og koma með þriðja skattþrepið fyrir þá sem mest þurftu á að halda þótt þeir láti alltaf líta út fyrir að þeir hafi verið að gera það til að þetta nýttist best láglaunafólkinu. Heyrðu, nei, það nýtist alveg jafn mikið þeim sem eru með há laun. Það er aldrei nema hálfur sannleikurinn sagður, aldrei nema það sem kemur sér vel fyrir þau, aldrei nema það sem þau halda að ef þau klifi nógu oft á því og segi hlutina nógu oft þá séuð þið, kæru landsmenn, tilbúnir til að kokgleypa vegna þess að þau eru frábær.
Svo er það þetta með gjaldfrjálsu máltíðirnar. Hver hefur ekki heyrt um gjaldfrjálsu máltíðirnar? Það er strax komið í ljós að þessar gjaldfrjálsu máltíðir eru að sliga grunnskólann, eru að sliga sveitarfélögin. Ekki nóg með það, milljarðamæringarnir eru líka með gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Þetta er ekki jöfnunartæki í fanginu á þessari ríkisstjórn. Nei, það er ekki jöfnunartæki og engar skerðingar nema þegar kemur að fátækasta fólkinu. Þegar kemur að ellilífeyrisþegum, þegar kemur að öryrkjum þá má skerða krónu á móti krónu. Þá má hefta atvinnu þeirra, möguleika á því að reyna að bjarga sér sjálf, þá má hefta allt og skerða allt algjörlega svoleiðis niður úr öllu valdi. En þegar kemur að gjaldfrjálsum skólamáltíðum þá geta milljarðamæringarnir líka fengið gjaldfrjálsar skólamáltíðir þótt þeir gætu náttúrlega leikandi greitt fyrir það sjálfir og þyrftu aldrei að nýta sér þetta. Ég hef heyrt að mjög margir kæri sig ekkert um gjaldfrjálsar skólamáltíðir fyrir börnin sín og séu bara hálf foj yfir því að fá ekki að greiða fyrir máltíð sinna barna og styðja við sitt sveitarfélag. Þessi flumbrugangur hér til að reyna að kaupa sér atkvæði er algerlega kominn fyrir ofan garð og neðan.
Svo er líka annað í sambandi við gjaldfrjálsu skólamáltíðirnar, og það hefur komið í ljós, hráefni hrakar. Hráefnið sem börnin okkar eru að fá á diskinn sinn er ekki jafn næringarmikið og ekki eins vel ígrundað eins og áður, engan veginn, enda liggur það algjörlega í hlutarins eðli. Ég tala þar af eigin reynslu þegar ég og við vorum að berjast fyrir því að hafa mat á diskinn fyrir börnin okkar eftir að maðurinn minn var handleggsbrotinn í sex ár vegna ítrekaðra læknamistaka og við áttum ekki fyrir salti í grautinn. Raunverulega barðist maður gjörsamlega frá degi til dags í þvílíkri fátækt, það er í fyrsta skipti núna sem ég finn að ég ætla ekki að fara að beygja af þegar ég tala um það því að mér hefur þótt svo sárt að rifja upp þennan erfiða tíma á lífsleiðinni minni, en þá er það nákvæmlega þannig að við reyndum í rauninni að hafa bara hafragraut, grjónagraut, núðlur. Maður reyndi að gefa börnunum að borða en það var ekki verið að gefa þeim einhverjar steikur. Það var ekki verið að kaupa ávexti. Ávextir og grænmeti er bara einhver munaðarvara á Íslandi. Á sama tíma og verið er að kalla á lýðheilsu er bara munaðarvara að kaupa ávexti og grænmeti á Íslandi, svona eins og fiskinn á diskinn. Þannig að ég segi: Betur má ef duga skal en eins og við segjum hérna, við munum öll þessar skelfilegu afleiðingar sem verðbólgan hefur haft á verðtryggð lán fjölskyldna þar sem skuldir heimilanna tvöfölduðust á einni nóttu í kringum efnahagshrunið, þar sem 15.000 fjölskyldur misstu heimili sín í kjölfarið. Þetta má aldrei gerast aftur og til að sporna gegn hörðustu áhrifum verðbólgunnar á heimilin þá erum við að leggja til að húsnæðisliðurinn verði tekinn út úr vísitölu neysluverðs og það strax og alveg á stundinni.
Því hefur verið haldið fram að það grafi undan trúverðugleika verðbólgumælinga að taka húsnæðisliðinn út úr vísitölu neysluverðs. Það er einfaldlega ekki rétt. Það er bara enn ein mantran, enn eitt bullið. Hagstofan heldur þegar til haga vísitölubreytingum án húsnæðis og því ætti stofnunin að geta breytt framkvæmdinni til samræmis við frumvarp þetta án nokkurrar fyrirhafnar. Áfram verður hægt að birta opinberlega vísitölu neysluverðs með húsnæðislið ef það er svona spennandi að sjá það en sú vísitala verður ekki lögð til grundvallar við útreikning verðtryggðra húsnæðislána. Um þetta segir í umsögn Hagsmunasamtaka heimilanna um frumvarp þetta á 152. löggjafarþingi, með leyfi forseta:
„Hagstofan birtir nefnilega vísitölu neysluverðs bæði með og án húsnæðis svo langt aftur sem mælingar ná og greiningaraðilar gætu því eftir sem áður stuðst við hvora þeirra sem þeir vilja frekar nota. Jafnframt myndi breytingin hafa þau raunverulegu áhrif að árshækkun verðtryggðra skuldbindinga myndi strax lækka …“
Frú forseti. Við leggjum núna málið inn í nefnd og vonumst eftir að umsagna verði óskað strax, að málinu verði fylgt eftir, að það sé raunverulegur vilji þessarar ríkisstjórnar að láta eitthvað að vera að marka sem hæstv. fjármálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, segir svo gjarnan, að þetta sé alveg að koma. Þetta er allt alveg að koma. Við skulum athuga hversu mikið það er að koma, hversu mikið er að marka það sem ríkisstjórnarflokkarnir og hæstv. ráðherrar eru að blaðra hér hingað og þangað í öllum fjölmiðlum og í æðsta ræðustóli landsins. Við fáum að sjá hversu mikið er að marka það þegar þeir hafa tekið utan um þennan húsnæðislið og svipt honum út úr vísitölu neysluverðs þegar verið er að reikna hér verðbólguna.