155. löggjafarþing — 6. fundur,  17. sept. 2024.

alþjóðlegar viðskiptaþvinganir gagnvart Ísrael.

18. mál
[14:54]
Horfa

Flm. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um að Alþingi álykti að fela ríkisstjórn Íslands að beita sér fyrir því að alþjóðlegum viðskiptaþvingunum verði komið á gagnvart Ísrael vegna framgöngu Ísraelshers í Palestínu. Eins og við höfum fylgst með í fréttum undanfarið tæpa árið þá er ekkert lát á hernaði Ísraels gagnvart Palestínumönnum og ég held að það sé orðið útséð með að eitthvert lát verði á honum nema alþjóðasamfélagið taki sig saman um aðgerðir sem setja raunverulegan þrýsting á ísraelsk stjórnvöld.

Ísraelsmenn hafa farið fram með ofbeldi gagnvart Palestínumönnum um margra áratuga skeið og hafa blossað upp aðgerðir þar sem ég og mörg fleiri telja að komið sé út fyrir öll velsæmismörk. Lengi hefur verið talað um að alþjóðasamfélagið verði að grípa í taumana þó svo að það hafi ekki verið gert. Vegna þessa þá leggjum við, ég og nokkrir hv. þingmenn, sem eru Orri Páll Jóhannsson, Jódís Skúladóttir, Eva Dögg Davíðsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Dagbjört Hákonardóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og Björn Leví Gunnarsson, fram þessa tillögu til þingsályktunar. En ég trúi því og treysti að stuðningsmenn hennar séu í raun langtum fleiri en þau sem eru meðflutningsmenn á henni.

Markmið alþjóðlegra þvingunaraðgerða er að viðhalda friði og öryggi og/eða tryggja virðingu fyrir mannfrelsi og mannréttindum. Það er öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sem ákveður þvingunaraðgerðir með bindandi hætti en ríkjahópar geta einnig átt slíkt samstarf. Nú þegar framfylgir Ísland þvingunaraðgerðum gagnvart 30 ríkjum, auk hryðjuverkasamtaka. Hérlendis eru þvingunaraðgerðir ákveðnar í samvinnu við alþjóðastofnanir, ríkjahópa eða samstarfsþjóðir samkvæmt lögum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna.

Viðskipti milli Íslands og Ísraels eru óveruleg og þó svo að gripið yrði til einhliða viðskiptaþvingana af hálfu Íslands þá hefði það vitaskuld táknræn áhrif, sem ég ætla ekki að gera lítið úr, en það myndi hins vegar gegna öðru máli ef helstu samstarfsríki Íslands tækju sig saman um slíkar aðgerðir. Það gætu til að mynda verið Norðurlandaþjóðirnar saman eða ríki Evrópska efnahagssvæðisins eða í rauninni bara hvaða ríki sem er. Við höfum fylgst með því hvernig lífið er murkað úr saklausum borgurum með árásum, með loft- og eldflaugaárásum á flóttamannabúðir, skóla og sjúkrahús auk þess sem komið er í veg fyrir heilbrigðisþjónustu og neyðaraðstoð. Það eru stríðsglæpir og við blasir þjóðarmorð. Í úrskurði Alþjóðadómstólsins í Haag frá janúar síðastliðnum kom fram að líklega væri Ísrael að fremja þjóðarmorð í Palestínu, m.a. með því að svipta Palestínumenn aðgengi að mat, vatni og öðrum lífsnauðsynjum. Þetta er ekki bara hver sem er sem er að halda þessu fram og færa rök fyrir þessu heldur er það Alþjóðadómstóllinn í Haag. Auk þess gaf Alþjóðadómstóllinn í júlí á þessu ári út álit þess efnis að herseta Ísraels á Vesturbakkanum og í Austur-Jerúsalem væri ólögleg, aðgerðir Ísraels á svæðinu jafngildi innlimun og að Palestínumönnum væri mismunað á kerfisbundinn hátt.

Frú forseti. Það var árið 2011 sem Ísland viðurkenndi Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki. Svíþjóð hefur sömuleiðis viðurkennt sjálfstæði Palestínu og nýlega hafa Noregur, Írland og Spánn einnig bæst í þann hóp. Alls hafa 146 ríki heimsins viðurkennt sjálfstæði Palestínu, langflest þó utan Vesturlanda.

Með tillögu þessari er því beint til íslenskra stjórnvalda að beita sér fyrir því að alþjóðlegum viðskiptaþvingunum verði komið á gagnvart Ísrael. Við flutningsmenn bendum á að það mætti hugsa sér að slíkt yrði t.d. gert í samráði og samtali við þessi lönd sem hafa viðurkennt sjálfstæði og fullveldi Palestínu en að sjálfsögðu einnig í samráði og samtali við öll þau lönd sem hægt væri að fá til liðs við málið.

Frú forseti. Ég hef á undanförnum þingum lagt fram mál með flutningsmönnum úr ýmsum flokkum þess efnis að fela ríkisstjórninni að grípa til nauðsynlegra ráðstafana m.a. til að merkja uppruna vara sem framleiddar eru á hernumdum svæðum Palestínu með viðeigandi hætti. Það er mál sem hefur því miður ekki náð fram að ganga og var í raun miklu minna umleikis en það sem ég mæli hér fyrir nú vegna þess að það snýst einvörðungu um það að merkja vörur þannig að neytendur á Íslandi geti valið sig frá því að kaupa vörur sem eru framleiddar á hernumdum svæðum, en líkt og ég gat um áðan gaf Alþjóðadómstóllinn í Haag út álit nú í sumar þess efnis að hersetan á Vesturbakkanum væri ólögleg. Það er sem sagt alveg í takti við það.

Mér þykir hins vegar núna algerlega viðeigandi að skipta um gír og tala bara fyrir því að Ísland beiti sér fyrir því að alþjóðlegum viðskiptaþvingunum verði komið á gagnvart Ísrael. Mig langar að taka það fram að þó svo að það standi ekki í tillögunni sjálfri þá tekur það í mínum huga einnig til sölu á vopnum til landsins. Ég held að það skipti máli.

Því miður hefur Ísrael haldið áfram hernaði sínum. Við höfum horft upp á þær hörmungar sem dynja á palestínsku þjóðinni með þeim árásum sem gerðar hafa verið á Gaza. Það ríkir orðið hungursneyð á svæðinu. Það er á þessum tímapunkti sem alþjóðasamfélagið verður að taka sig saman og grípa til aðgerða og mér finnst viðeigandi að ríki sem viðurkenndi sjálfstæði Palestínu og var þar fyrst vestrænna ríkja til að gera það taki frumkvæði og leiðandi stefnu í þessu máli.

Frú forseti. Ég vona að þetta mál hljóti góðar undirtektir hér í þinginu og legg til að að þessari umræðu lokinni verði málinu vísað til utanríkismálanefndar sem taki við málinu og vinni það áfram hratt og örugglega.