155. löggjafarþing — 6. fundur,  17. sept. 2024.

alþjóðlegar viðskiptaþvinganir gagnvart Ísrael.

18. mál
[15:05]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. flutningsmanni fyrir ræðuna. Hinn 9. október síðastliðinn samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu um tafarlaust vopnahlé á Gaza-svæðinu til að tryggja öryggi almennra borgara. Þar voru öll ofbeldisverk fordæmd, auk þess sem gerð var krafa um að alþjóðalögum yrði fylgt í einu og öllu í þágu mannúðar, öryggis almennra borgara og borgaralegra innviða. Ísland viðurkenndi sjálfstæði Palestínu, eitt fyrst ríkja Evrópu, með þingsályktun haustið 2011 og í desember sama ár staðfestu utanríkisráðherrar Íslands og Palestínu upptöku stjórnmálasambands með formlegum hætti. Í desember samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ályktun um mannúðarvopnahlé á Gaza. Ályktunin var samþykkt með yfirgnæfandi meiri hluta og var Ísland meðal þeirra 153 ríkja sem studdu ályktunina. Í janúar síðastliðnum kvað Alþjóðadómstóllinn í Haag upp bráðabirgðaúrskurð í máli Suður-Afríku gegn Ísrael. Niðurstaða hans var sú að Ísraelum bæri að tryggja að hernaður þeirra bryti ekki gegn alþjóðasáttmála um bann við þjóðarmorði auk þess sem þeim var fyrirskipað að leggja sig fram um að hjálpargögn bærust til Gaza. Og síðastliðið vor kvað Alþjóðadómstóllinn í Haag upp annan bráðabirgðaúrskurð í máli Suður-Afríku gegn Ísrael um að Ísrael yrði að hætta öllum hernaðaraðgerðum í Rafah-borg. Þá var Ísrael skipað að opna landamærin sem liggja frá Rafah að Egyptalandi til að tryggja að mannúðaraðstoð gæti borist til borgarinnar. Að lokum samþykkti svo öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í mars ályktun þar sem farið var fram á tafarlaust vopnahlé á Gaza.

Frú forseti. Síðastliðið vor lýsti formaður Samfylkingarinnar því yfir að Íslandi bæri að taka ákveðnari skref til stuðnings palestínsku þjóðinni með því að taka forystu í að leiða Norðurlandaþjóðirnar saman í samtal um innleiðingu viðskiptaþvingana gegn Ísrael vegna framgöngu þeirra á Gaza. Hugmyndir formanns flokksins ríma vel við þá tillögu sem hér er til umfjöllunar og við í Samfylkingunni styðjum tillöguna. Við vitum að viðskiptaþvinganir eru áhrifaríkt tæki. Eitt þekktasta dæmi þess er hvernig alþjóðlegar viðskiptaþvinganir, sem Íslendingar tóku þátt í, knúðu fram afnám kynþáttaaðskilnaðar í Suður-Afríku á níunda áratug síðustu aldar. Þá hefur Ísland tekið þátt í þvingunaraðgerðum gagnvart Rússlandi í samvinnu við Evrópusambandið. Markmið þvingunaraðgerða er að viðhalda friði og öryggi í heiminum og/eða tryggja virðingu fyrir mannréttindum og mannfrelsi. Það er ljóst að Ísrael hefur á engan hátt framfylgt ályktunum og úrskurðum stofnana Sameinuðu þjóðanna. Þvert á móti hefur hernaðurinn verið linnulaus og nú er tala þeirra sem myrt hafa verið komin yfir 41.000 manns og undanfarna daga hefur hernaðaraðgerðum á Vesturbakka fjölgað.

Frú forseti. Ísland hefur sterka rödd á alþjóðasviðinu. Við atburði á borð við þá sem við höfum horft upp á undanfarna 11 mánuði á Gaza ber okkur siðferðileg skylda til að nýta rödd okkar með því að tala fyrir friðsamlegum lausnum sem við vitum að virka. Samstaða með Palestínu á alþjóðlegum vettvangi hefur aukist eftir því sem hernaður Ísraela hefur aukist. Við eigum að sýna samstöðu með palestínsku þjóðinni og hafa frumkvæði að samtali við við aðrar Norðurlanda- og Evrópuþjóðir um viðskiptaþvinganir gagnvart Ísrael. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi og við verðum að láta reyna á mátt okkar og hefja samtalið. Það er það minnsta og ef til vill það eina sem við getum lagt af mörkum gagnvart þeim hörmungum sem við erum öll sammála um að verði að linna.