vextir og verðtrygging o.fl.
Frú forseti. Hér kem ég enn á ný og mæli fyrir mjög mikilvægu frumvarpi sem kallað hefur verið eftir um árabil af skuldsettum heimilum og fyrirtækjum í landinu. Frumvarp þetta er til laga um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu, lögum um neytendalán og lögum um fasteignalán til neytenda, afnám verðtryggingar lána til neytenda. Þingflokkur Flokks fólksins stendur að þessu frumvarpi og þar eru svo yfirgripsmiklar lagabreytingar í svo mörgum liðum og svo margir lagabálkar sem heyra hér undir að ég er að hugsa um að sleppa virðulegum forseta og öllum öðrum sem á hlýða við þennan yfirlestur og tilvísanir í lagaflækjurnar en snúa mér beint að greinargerðinni með frumvarpinu.
Frumvarp þetta var áður lagt fram á 152., 153. og 154. löggjafarþingi og er ég að mæla fyrir afnámi verðtryggingar á neytendalánum fjórða árið í röð. Það er nefnilega athyglisvert að bæði í kjarasamningum og kröfum verkalýðsstéttar og fleiri hefur nákvæmlega þetta verið eitt af þeim baráttumálum sem hafa verið sett á oddinn, að taka verðtrygginguna af. Ríkisstjórnin lofaði því í stjórnarsáttmála sínum, þegar ég byrjaði 2017, og víðar að það yrði tekið til greina og að nú yrði virkilega ráðist í það á skipulagðan hátt að taka þessa verðtryggingu af neytendalánum. En hér erum við enn og nú eru í rauninni stórkostlegustu fjármagnsflutningar allra tíma að eiga sér stað í boði verðtryggingar og húsnæðisliðar, en ég mælti fyrir máli sem tengdist honum fyrr í dag, og við færum eignir heimila og skuldsettra lítilla og meðalstórra fyrirtækja í heilu og hálfu bílförmunum í fangið á bönkunum.
Með frumvarpinu er lagt til að framvegis verði óheimilt að verðtryggja neytendalán og fasteignalán til neytenda. Í því felst að eftir gildistöku slíkra laga yrði óheimilt að veita neytendum lán með skilmálum um verðtryggingu miðað við hvers konar verðvísitölur, svo sem neysluverð, gengi gjaldmiðla eða hlutabréfa. Að sama skapi er lagt til að úr lögum um neytendalán, nr. 33/2013, og lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016, verði felld brott ákvæði sem gera ráð fyrir slíkri verðtryggingu enda yrðu þau þá óþörf. Eftir sem áður yrði áfram heimilt að breytilegir vextir óverðtryggðra lána til neytenda tækju mið af opinberum viðmiðum eða vísitölum að því leyti sem gert er ráð fyrir í viðkomandi lögum.
Um tilefni og nauðsyn lagasetningar segir:
Um langt árabil hefur verið hávær krafa í samfélaginu um afnám verðtryggingar lána til neytenda og margar viðhorfskannanir sýnt fram á víðtækan stuðning við þær kröfur. Ýmsir sérfræðingar hafa verið fengnir til að gera skýrslur og sérfræðingahópar skipaðir til að fjalla um málefnið. Þá hafa ítrekað verið lögð fram frumvörp um að afnema eða setja skorður við verðtryggingu með ýmsum hætti, sem ekki hafa náð fram að ganga þrátt fyrir að slík markmið hafi margoft komið fram í stjórnarsáttmálum fyrri ríkisstjórna eins og ég áður ýjaði að.
Markmið frumvarps þessa er að stöðva veitingu verðtryggðra lána til neytenda og stíga afgerandi skref í átt að fullu afnámi þess lánafyrirkomulags. Ekki er gert ráð fyrir því að sú breyting hafi afturvirk áhrif, en að eldri verðtryggð lán muni þó með tímanum hverfa úr umferð, jafnvel þótt ekki kæmi annað til en eðlilegar uppgreiðslur þeirra. Þar sem kveðið er á um heimildir til verðtryggingar með lögum er ekki fær önnur leið að settu marki en sú að breyta þeim lögum til að girða fyrir veitingu verðtryggðra lána til neytenda.
Um meginefni frumvarpsins segir að með 1. gr. frumvarps þessa sé lagt til að óheimilt verði að verðtryggja neytendalán og fasteignalán til neytenda. Með þessu er gert ráð fyrir að áhrif breytingarinnar muni ná til allra lána sem framvegis yrðu veitt samkvæmt lögum um neytendalán, nr. 33/2013, eða lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.
Með því að afnema heimild til verðtryggingar lána til neytenda yrði girt fyrir að fleiri slík lán yrðu veitt, en eldri lánum sem eftir standa mun fækka í tímans rás með uppgreiðslum á þeim. Þannig er hér um að ræða eitt skref af fleirum í nauðsynlegri endurskipulagningu á lánaumhverfi neytenda á Íslandi. Enn fremur þarf að skapa hvata og stuðning til að liðka fyrir því að heimili sem það kjósa geti breytt eldri verðtryggðum lánum í óverðtryggð lán. Ákveðin skref í þá átt voru tekin með afnámi stimpilgjalda á lánum, lækkun á lántökugjaldi og öðrum kostnaði við endurfjármögnun lána. Lokaskrefið á þeirri vegferð er að koma böndum á sjálft vaxtastigið, einkum í húsnæðislánum, sem hefur einkennst af talsverðum sveiflum. Ekki er djúpt í árinni tekið með slíkri framsetningu.
Um markmið og áhrif þá hefði samþykkt frumvarpsins einkum áhrif á tvo hópa, annars vegar lánveitendur á borð við banka, sparisjóði og aðrar lánastofnanir, og hins vegar neytendur, þ.e. almenning.
Áhrifin á lánveitendur yrðu þau helst að þeir gætu ekki lengur veitt verðtryggð lán til neytenda. Til framtíðar myndu uppgreiðslur eldri verðtryggðra lána draga úr umfangi verðtryggðra útlána þeirra. Slík þróun er þegar hafin en fyrir um þremur árum var hlutfall verðtryggðra fasteignalána til neytenda komið niður í 75% og var um mitt ár 2022 komið undir 44% allra íbúðalána. Sú þróun sem við erum hins vegar að horfa upp á í dag er kúvending í þá átt að fólk er að reyna að verja heimili sitt, reyna að fá lægri greiðslubyrði frá mánuði til mánaðar þrátt fyrir að vita að með því er það að færa eignarhlutinn í fasteigninni sinni í græðgiskjaft banka. Því er þetta neyðarbrauð, algert neyðarbrauð og maður spyr sig: Hvenær virkjast neyðarrétturinn? Hvenær er það sem við getum beitt öllu sem við eigum til þess að reyna að halda heimili okkar í öruggri höfn og hafa þak yfir höfuðið?
Á þessum tíma árið 2022 þegar verðtryggð lán heimila og fyrirtækja voru komin undir 44% allra útlána höfðu á sama tímabili hrein og ný verðtryggð útlán verið neikvæð vegna uppgreiðslu þeirra eða breytinga í óverðtryggð lán. Þarna kepptist fólk við að skuldbreyta. Það fór og losaði sig undan þessu oki verðtryggingar. Það ákvað að taka á sig óverðtryggðu lánin og vildi sjá fyrir fram hvað það ætti að greiða á mánuði og fólk var að taka lán á föstum vöxtum til allt að fimm ára, en margir hverjir voru þó ekki með möguleika á að festa vextina nema til þriggja ára og þá kemur til þessi snjóhengja, þetta snjóflóð sem við höfum verið að sjá falla yfir fasteignaeigendur frá því um mitt árið 2023. Nú er alger holskefla og snjóflóðið er í rauninni að flæða yfir afganginn af þeim sem eru ekki þegar búnir að flýja í náðarfaðm verðtryggingarinnar, þannig að greiðslubyrði þessara óverðtryggðu lána einstaklinga hefur hreinlega margfaldast. Þar tala ég af eigin reynslu, enda er ég þingmaður með ágætistekjur eins og allir vita og get tekið á mig þennan skell. Ég get tekið á mig skellinn að fara úr því að borga tæpar 200.000 kr. í að borga 400.000 kr. Ég get það en hinn almenni Íslendingur, hinn almenni fjölskyldumaður, getur það ekki. Sá sem er láglaunamaður, sá sem er á örorku, sá sem er á ellilífeyri eða hver annar láglaunaeinstaklingur sem er getur ekki bjargað sér úr þessu snjóflóði sem stjórnvöld eru búin að leysa úr læðingi og hella yfir hann nema með því að fara í náðarfaðm verðtryggingarinnar, sem í lok dags gerir ekkert annað en að mynda greiðslubyrði á örfáum árum mörgum sinnum hærri en okurgreiðslubyrðin var á óverðtryggða láninu þegar verið var að flýja úr því. Það er sem sagt verið að lengja í hengingarólinni, enn og aftur er verið að lengja í hengingarólinni.
Undanfarið hafa lántakar, eins og ég segi, verið að færa sig yfir í þessi verðtryggðu lán en frumvarpið er til þess fallið að styðja við þá þróun að við losnum undan náðarfaðmi verðtryggingarinnar, að við getum aftur farið þangað sem við vorum þegar var þokkalegt landslag og ríkisstjórnin lofaði okkur lágvaxtaumhverfi til framtíðar og hvatti alla til að fara nú að drífa sig að fjárfesta í fasteign. Með því að taka verðtrygginguna af neytendalánum erum við líka að þvinga bankana í ákveðið umhverfi. Þeir eiga ekkert val. Þeir geta ekki haldið áfram að kúga okkur svona. Margir vilja verja verðtrygginguna og halda henni áfram þó að engir erlendir fjármálasérfræðingar botni upp né niður í því hvað raunverulega er verið að segja með henni: Þýðir það, hv. þingmaður, að þið þurfið alltaf að taka nýtt og nýtt lán? Breytist alltaf lánið? Breytist alltaf höfuðstóllinn? Hvernig getur höfuðstóll láns sem þú ákveður og er þinglýst og þú ert búinn að samþykkja breyst svona allt í einu? Hvernig getur höfuðstóll upp á 40 milljónir orðið 55 milljónir skömmu síðar, hvernig er það mögulegt? Hvers lags eiginlega samninga- og kröfuréttarumhverfi er það sem þið búið við, ágætu Íslendingar?
Áhrifin á neytendur yrðu t.d. þau að lánaskilmálar yrðu skiljanlegri og lánskjörin gegnsærri. Þannig yrði samanburður á lánskjörum auðveldari sem gæti stuðlað að virkari samkeppni. Þá myndu neytendur losna við þann óstöðugleika í fjármálum heimila sinna sem leiðir af óvissu um hvað þau skyldu nú þurfa að borga á hverjum gjalddaga fyrir sig, en sú þróun hefur þegar orðið að neytendur leita í stórauknum mæli í þennan náðarfaðm verðtryggingarinnar. Ég skora því á hv. þingmenn að samþykkja þetta frumvarp. Það hefði engin sérstök áhrif á stjórnsýslu ríkisins, enda leggur það ekki neinar nýjar skyldur á herðar stjórnvöldum. Þvert á móti gæti það stuðlað að skilvirkara opinberu eftirliti með lánastarfsemi vegna minna flækjustigs í skilmálum lána til neytenda. Jafnframt væri það til þess fallið að gera peningastefnu Seðlabanka Íslands skilvirkari, en mikil útbreiðsla verðtryggingar lánsfjár hefur verið talin hamla framgangi þeirrar skilvirkni.
Með samþykkt frumvarpsins yrði tekið afgerandi skref til þess að afnema verðtryggingu á lánamarkaði fyrir neytendur og koma á sambærilegu lánaumhverfi við flest önnur lönd þar sem lánsfé er einfaldlega verðlagt með vöxtum. Það myndi draga úr verðbólgusveiflum og skapa þannig forsendur fyrir lægri vöxtum en ella. Hverjum skyldi það vera til hagsbóta? Hverjir skyldu nú aðallega geta þakkað það nema neytendur, sem verið er að blóðmjólka núna, neytendur, sem alltaf borga brúsann. Og það er alveg sama hversu bogin bökin eru hjá skuldsettum einstaklingum, það á alltaf að beygja þau meira. Og hverjir eru það sem skyldu hagnast? Eru það neytendurnir? Eru það vinnandi stéttir í landinu? Eru það þeir sem eru að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið, eða skyldi það vera fjármálakerfið? Skyldi það vera græðgiskjaftur bankanna og lánastofnana sem smám saman eru að söðla undir sig eignarhlut heimilanna, eignarhlut neytenda í fasteignum sínum og fyrirtækjum? Það er nákvæmlega það sem það er.
Ég er að hugsa um að láta þetta liggja um einstakar greinar í frumvarpinu, ég ætla ekki að fara að tala um það. Ég hvet alla til að kynna sér þetta frumvarp. Það er svolítið yfirgripsmikið, enda er um mjög mikilvægt og stórt mál að ræða sem hefur verið kallað eftir um árabil. Það man hver einasti einstaklingur sem kominn er vel á miðjan aldur hvernig réttlætingin var fyrir verðtryggingunni á sínum tíma, þar sem hún var líka tengd við launin. Launin voru líka verðtryggð. Það voru því ekki bara lánin sem voru verðtryggð, það var ekki bara verið að setja belti og axlabönd á fjármálakerfið heldur var líka verið að tryggja að launin okkar fylgdu nákvæmlega þessari verðtryggingu, þau voru líka verðtryggð. En einhverra hluta vegna, allt í einu, vaknaði ríkisstjórn þeirra tíma upp við þann draum að það borgaði sig ekki að vera að koma til móts við launþega í landinu. Það borgaði sig ekki að vera að tryggja þeim eitthvert vísitöluöryggi í kjaramálum sínum, í laununum sínum. Nei, smám saman hefur kjaragliðnunin vaxið ár frá ári og er nú orðin svo ótrúleg og gjáin svo djúp og breið að í rauninni hefur enginn grætt annað eins og fjármálakerfið, peningaöflin og bisnessliðið í landinu og þeir sem eru í raun að spila Matador í samfélaginu okkar dag eftir dag, ár eftir ár, kjörtímabil eftir kjörtímabil í boði ríkisstjórna hverju sinni.
Ákall hefur verið um þetta. Það er ákall allra, ákall neytenda, ákall okkar að vita hvort við erum að koma eða fara, hvað við munum þurfa að borga af lánum okkar. Hvers vegna eru svona miklu hærri vextir hér en í löndunum í kringum okkur? Jafnvel í Færeyjum eru mörgum sinnum lægri vextir og það er þó samfélag sem er sex ef ekki átta sinnum fámennara en Ísland. Við getum horft á öll Norðurlöndin og við getum næstum því horft út um allan heim, þar sem við lítum til réttarríkja og siðmenntaðra samfélaga sem ekki standa í stríðsrekstri eða glíma við annað alvarlegt ástand sem er þess valdandi að efnahagur þeirra er í rjúkandi rúst. Við erum alltaf að hengja okkur nákvæmlega á þann stað. Hvar skyldu nú stýrivextir vera hæstir í Evrópu? Jú, við getum státað af því að vera með Rússlandi, Úkraínu, Hvíta-Rússlandi og Tyrklandi í liði. Ísland er með akkúrat þessum í liði. Svo segjum við: Við sem skorum hæst í öllu sem heitir jöfnuður og mannréttindi, við sem búum í réttarríki og við sem erum svo fín og flott. Með fullri virðingu vildi ég gjarnan geta borið mig saman og fengið að státa mig af samanburði við lönd sem raunverulega hafa náð einhverjum árangri í baráttunni við verðbólguna, sem raunverulega eru að taka utan um samfélagið sitt og hjálpa því þegar það er í erfiðleikum eins og okkar samfélag er í núna. Þetta er það sem vinnandi stéttir hafa kallað eftir, það sem forystufólkið okkar í verkalýðshreyfingunum hefur kallað eftir ár eftir ár þegar kemur að kjarasamningum: Verðtrygginguna út úr neytendalánum. Burt með verðtrygginguna. Við viljum vita hvað við eigum að borga. Við viljum vita mörg ár fram í tímann hver greiðslubyrði okkar er. Við viljum sjá hvernig við getum kortlagt fram í tímann, hvort við höfum efni á því að stækka við okkur heimilið, á því að fara í sumarfrí, hvort við höfum efni á því að gera eitt eða neitt eða hvort við höfum ekki efni á neinu nema því að berjast frá degi til dags bara til þess að halda þaki yfir höfuðið.
Þetta er í fjórða skipti sem Flokkur fólksins berst fyrir því að koma verðtryggingunni út úr neytendalánum og ég segi: Ef þessi ríkisstjórn ætlar ekki að standa við neitt af því sem hún áður hefur gefið í skyn um að hún vilji skoða og taka verðtrygginguna af neytendalánum, vill hún þá ekki verðtryggja launin okkar líka?