vextir og verðtrygging o.fl.
Virðulegi forseti. Verðtryggð lán til almennings voru tímabundin ráðstöfun, tilraun sem gerð var fyrir 40 árum og stendur enn yfir þrátt fyrir að hafa ítrekað leitt mikla erfiðleika yfir íslensk heimili. Það var samt ekki fyrr en eftir bankahrunið 2008 með tilkomu Hagsmunasamtaka heimilanna sem baráttan gegn þeim hófst fyrir alvöru. Þegar afleiðingar bankahrunsins blöstu við kom skelfing þeirra í ljós og í kjölfarið misstu tugþúsundir heimili sín vegna verðtryggðra lána. Já, ég segi tugþúsundir því það er í fyrsta lagi staðreynd að um 15.000 fjölskyldur misstu heimili sín í kjölfar hrunsins og á flestum þessara heimila voru íbúar fleiri en einn og hafi þeir verið að meðaltali þrír voru þetta um 45.000 einstaklingar sem misstu heimili sín. Í öðru lagi er það staðreynd að langstærsti hluti heimilanna sem bankarnir hirtu voru með verðtryggð lán. Í því ljósi er það ótrúleg skammsýni, svo vægt sé til orða tekið, að neyða núna þúsundir heimila í verðtryggð lán en ég kem nánar að því síðar.
Fyrsta frumvarpið um afnám eða bann við verðtryggingu á lánum til neytenda var lagt fram árið 2013 af þingkonunum Lilju Mósesdóttur og Margréti Tryggvadóttur. Það frumvarp var samið af Hagsmunasamtökum heimilanna og það hef ég sjálf lagt fram með þingmönnum Flokks fólksins, lítið breytt, undanfarin þrjú ár. Hagsmunasamtök heimilanna hafa líka skrifað ótal álit og greinar ásamt því að reka mál fyrir dómstólum sem leituðu álits EFTA-dómstólsins sem fann verðtryggðum neytendalánum allt til foráttu. Íslenskir dómstólar hunsuðu álitið engu að síður algerlega en það er í eina skiptið sem dómstólar aðildarríkja EES hafa gert það samkvæmt munnlegu svari fyrrverandi forseta dómstólsins, Carls Baudenbachers, á fundi sem haldinn var í Þjóðmenningarhúsinu 14. mars 2016.
Þann 9. október 2018 lagði Þórunn Egilsdóttir fram beiðni um skýrslu frá félags- og jafnréttismálaráðherra um úttekt á stöðu ólíkra hópa fólks með tilliti til eigna-, tekju- og atvinnustöðu tíu árum eftir hrun. Skýrslubeiðnin var útfærð í samstarfi við Hagsmunasamtök heimilanna og naut stuðnings þingmanna úr flestum ef ekki öllum flokkum sem þá sátu á Alþingi. Skýrslan tafðist töluvert, einkum vegna tregðu ýmissa opinberra aðila til að gefa tölulegar upplýsingar um stöðu mála, en skýrsludrögum var skilað inn til félagsmálaráðuneytisins snemma vors 2021 þótt enn vantaði nokkuð af umbeðnum upplýsingum. Þá brá svo við að ítrekuðum óskum Hagsmunasamtakanna um opinbera birtingu var í engu svarað fyrr en eftir kosningarnar þá um haustið með þeim orðum að þar sem hún tilheyrði síðasta þingi yrði hún ekki birt úr því sem komið er, enda eru í þessari skýrslu, sem ekki fæst birt, kaflar um verðtryggð lán og áhrif þeirra á hagkerfið og heimilin sem eru annars vegar skrifaðir af Jacqueline Mallett, lektor við Háskólann í Reykjavík og Ólafi Margeirssyni, doktor í hagfræði, og niðurstaða þeirra er vægast sagt áfellisdómur yfir verðtryggðum lánum og áhrifum þeirra á hagkerfið og heimilin. Í kaflanum sem dr. Ólafur Margeirsson skrifar er fjallað um lán með neikvæðum afborgunum eins og verðtryggð lán eru og hættuna sem af þeim stafar fyrir hagkerfið og heimilin. Þar segir, með leyfi forseta:
„Lán með neikvæðri afborgun eru bönnuð vegna neytendaverndarsjónarmiða í 25 ríkjum Bandaríkjanna, einkum vegna þess að þau flokkast undir ræningjalán eða „predatory lending“ og eru í raun aðeins viðeigandi fyrir lántaka sem eru agaðir og fjárhagslega mjög vel að sér ásamt því að hafa óreglulegar tekjur. Slík íbúðalán eru þannig flokkuð í Bandaríkjunum sem lán sem gera það ólíklegra en ella að lántakinn geti staðið undir kostnaði vegna þeirra og eru þau talin hafa ýtt undir undirmálslánakrísuna sem varð að fjármálakrísunni 2008 í Bandaríkjunum. Opinberar stofnanir og félagasamtök í Bandaríkjunum hafa sérstaklega varað lántaka við slíkum lánum og ráðlagt að taka ekki slík lán. Slík lánaform eru einnig bönnuð í Sviss af lánum til neytenda og í Svíþjóð hefur þarlent fjármálaeftirlit gert kröfu um að eiginleg afborgun, svo höfuðstóllinn lækki, eigi sér stað á öllum nýjum íbúðalánum, m.a. til að auka fjármálalegan stöðugleika. Íbúðalán með neikvæðri afborgun eru ekki til í Bretlandi.“
Svo mörg voru þau orð.
Einn galli verðtryggðra lána er að húsnæðisverð verður að hækka því annars situr fólk fljótlega uppi með yfirveðsettar eignir með tilheyrandi afleiðingum. Taka má dæmi af 80 milljóna verðtryggðu láni til 25 ára en það er 80% veðsetning á 100 millj. kr. eign. Það tekur minna en sjö ár fyrir höfuðstól lánsins að ná 100 millj. kr. Hækki fasteignaverð ekki verulega og eigi veðsetning lánsins ekki að fara yfir 80% veðsetningu þarf húsnæðið að hafa hækkað um 25% á þeim tíma og eign skuldarans að vera metin á 125 milljónir. Höfuðstóll lánsins nær svo 119 millj. kr. á 16 árum og til að halda í við 80% veðsetningarhlutfall þyrfti eignin að hafa hækkað upp í 148 milljónir eða um næstum helming á þessum árum.
Við hér á Íslandi höfum horft upp á gríðarlegar hækkanir á fasteignum sem eru þegar upp er staðið engum til góðs enda þýða þær bara meiri kostnað fyrir alla. Þótt rekja megi orsökina núna til skorts á húsnæði er það staðreynd að verðtrygging á lánum neytenda bæði krefst og leiðir til hækkunar á húsnæðisverði því annars stendur kerfið ekki undir sér. Það vekur hreinlega upp spurningar um þennan löngu fyrirséða skort á húsnæði sem bæði ríki og sveitarfélög hafa staðið sig illa í að leysa en það er önnur umræða sem ekki verður farið í núna.
Í skýrslunni góðu fjallar dr. Ólafur Margeirsson um áhrif verðtryggingarinnar á húsnæðisverð en þar segir, með leyfi forseta:
„Ef húsnæðisverð hækkar nægilega hratt til að lántakinn geti selt húsnæðið og greitt lánið ásamt uppsöfnuðum kostnaði til baka bjargast hann úr stöðunni sem of mikil skuldsetning kemur honum í, en að treysta á nægilega hækkun húsnæðisverðs er hættulegur leikur sem ekki gengur til lengdar og allra síst kerfislega. Rétt er að muna að slík fjárhagsleg uppbygging kallast spákaupmennskufjármögnun eða jafnvel Ponzi-fjármögnun í fræðunum um fjármálalegan stöðugleika og það er vel þekkt innan fræðanna um fjármálalegan stöðugleika að því meira áberandi sem spákaupmennska og Ponzi-fjármögnun er í hagkerfinu því næmara er það fyrir fjármálalegum óstöðugleika og því líklegra er að innan þess þróist innbyggðir ferlar sem ýta hagkerfinu öllu í átt að fjármálakrísu. Þess aukinheldur leiðir þetta til þeirrar stöðu að húsnæðisverð er, vegna ráðandi stöðu lána með neikvæðum afborgunum í kerfinu, of hátt fyrir flesta lántaka sem vilja taka öruggari lán, þ.e. lán sem ekki eru með neikvæðum afborgunum. Því neyðast flestir lántakar til að taka verðtryggð lán, þ.e. lán með neikvæðum afborgunum, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Vinsældir óverðtryggðra lána, þ.e. sem ekki eru með neikvæðum afborgunum, síðla árs 2020, þegar vaxtastig hafði lækkað í kjölfar vaxtabreytinga Seðlabankans, sýnir það ágætlega hversu óvinsæl verðtryggð lán í raun eru, jafnvel þótt svo margir lántakar hafi tekið þau í gegnum tíðina. Fólk sem neyðist til að taka verðtryggð lán, þ.e. lán með neikvæðum afborgunum, til að fjármagna kaup á fasteign er ekki að sýna val sitt á lánakostum í verki.“
Í ljósi alls þessa er það með miklum ólíkindum hve mikil tregðan hér á Alþingi er til að banna verðtryggð lán til neytenda.
Það skal tekið skýrt fram að verðtrygging verður samt að vera til staðar á milli fagfjárfesta og ríkis því annars hafa þessir aðilar enga hagsmuni af því að halda niðri verðbólgu eins og við höfum séð á undanförnum mánuðum og árum þegar þeir hagnast og fitna eins og púkinn á fjósbitanum vegna verðbólgunnar, og það sem meira er, með því að herða svo snöruna að heimilum landsins og neyða þannig yfir í verðtryggð lán mun þessi yfirstandandi verðbólga halda áfram að mala þeim gull löngu eftir að hún er yfirstaðin og gleymd í hugum þeirra sem stóðu hana af sér án þess að neyðast til að taka verðtryggð lán. Þá fyrst munu alvarleg áhrif hennar koma fram með skelfilegum afleiðingum þar sem þúsundir missa líklega heimili sín.
Í síðustu viku skrifuðum við Ragnar Þór Ingólfsson grein þar sem við sögðum frá einstæðri móður og stöðu hennar. Hún er á örorkubótum en hefur náð að eignast og halda íbúð með mikilli útsjónarsemi. Hún skuldar um 30 milljónir í íbúð sem í dag gæti selst á um 70 milljónir. Hún var sem betur fer ekki með verðtryggt lán því hún vildi forðast það með öllum ráðum og borga niður sínar skuldir. Hún festi vexti fyrir nokkrum árum og hefur greitt 120.000 á mánuði af lánunum. En svo féll snjóhengjan og núna á hún að greiða 270.000 kr. í hverjum mánuði. Það er ljóst að hún stendur ekki undir því og einnig er morgunljóst að þessi fína eiginfjárstaða sem forsætisráðherra er alltaf að vísa til hjálpar henni ekkert. Að auki er ekki einu sinni víst að hún fái greiðslumat til að skuldbreyta yfir í verðtryggt lán því afborgun af því til 25 ára er orðin 155.000 kr. sem samsvarar rúmlega 6% vöxtum á óverðtryggðu láni.
Henni standa tveir kostir til boða og báðir slæmir. Ef hún skuldbreytir ekki yfir í verðtryggt lán missir hún heimili sitt strax, heimilið sem hún hefur lagt svo mikið á sig fyrir, en vandræðum hennar mun ekki ljúka þó að hún fái að skuldbreyta yfir í verðtryggt lán. Staðreyndin er sú að fyrsta greiðsla verðtryggðs láns sem greiðslumatið miðast við er lægsta greiðsla lánsins því eftir tvö ár hefur höfuðstóll lánsins hækkað um 2,3 milljónir og greiðslubyrðin um 20.000 kr., úr 155.000 í 175.000 á mánuði. Eftir fimm ár hefur lánið hækkað um 5,3 milljónir og greiðslubyrðin orðin 210.000 á mánuði sem samsvarar 8% vaxtagreiðslum af óverðtryggðu láni. Ef við vogum okkur að gera ráð fyrir því að eftir fimm ár verði Ísland á þokkalega góðum stað efnahagslega með vexti upp á 4% munu vaxtagreiðslur af óverðtryggðu láni af þessari stærðargráðu vera um 100.000 kr. á mánuði. Sé lánið með jöfnum afborgunum, sem eru hæstu afborganirnar, yrði heildargreiðslan ekki nema 162.000 kr. á mánuði. Á sama tíma verður þessi einstæða móðir að greiða 210.000 kr. á mánuði og sú afborgun yrði í lok 30 ára lánstíma búin að hækka upp í 863.000 kr. eða um 475%. Á sama tíma er þeim boðskap haldið á lofti að stilla verði kröfum um launahækkanir í hóf til að berjast gegn verðbólgu. Þetta reikningsdæmi gengur einfaldlega ekki upp. Svo er fólk í þessum sal og víðar sem ver verðtryggð lán með þeim orðum að þau verði að vera til fyrir þau verst stöddu. Hvernig getur þetta endað öðruvísi en með ósköpum? Bankarnir hafa nú þegar lokað á allar aðrar lausnir en verðtryggð lán. Það er verulega kaldhæðnislegt, þegar það er haft í huga að í kjölfar hrunsins misstu a.m.k. 15.000 fjölskyldur heimili sín og langstærstur hluti þeirra var einmitt með verðtryggð lán, að nú sé verið að bjóða fólki upp á verðtryggingu sem einhvers konar lausn. Ég vil kalla það glæpsamlegt ofbeldi gegn varnarlausu fólki og því miður er skelfileg saga að endurtaka sig.
Eftir að hafa barist fyrir heimilin frá bankahruninu 2008 með einum eða öðrum hætti og sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna frá 2017 þekki ég þau mál betur en margir. Markmið mitt og Hagsmunasamtaka heimilanna hefur verið að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig en þó að aðstæður séu aðrar núna en þá er sagan samt að endurtaka sig. Þá voru fjármunir heimilanna færðir til bankanna undir svokallaðri skjaldborg heimilanna sem ein og sér olli því að þúsundum voru allar bjargir bannaðar. Nú er um að ræða aðgerðir gegn verðbólgu sem hafa þau áhrif að fé heimilanna er flutt í bílförmum á færibandi beint í fjárhirslur bankanna. Þá voru heimilin snöggsteikt, allt gerðist hratt, það varð hrun, sett voru ólög og strax ljóst að fjölmörg heimili ættu enga von. Nú eru heimilin hægelduð. Þeim hafa verið boðnar lausnir eins og að hækka yfirdráttinn og taka meiri lán sem mörg hafa svigrúm fyrir standist þau greiðslumat vegna góðrar eiginfjárstöðu. Þá birtust fyrirmenn í fjölmiðlum, eins og t.d. ráðherrar og seðlabankastjóri, og töluðu ábúðarfullir og alvarlegir um ábyrgðarleysi heimilanna sem hefðu reist sér hurðarás um öxl, auk þess að hafa áhyggjur af lélegu fjármálalæsi þeirra. Þeir ræddu hins vegar ekkert um ábyrgðarleysi, hurðarás eða lélegt fjármálalæsi bankanna sem þó höfðu valdið öllum þessum vandræðum heimilanna án þess að taka nokkra ábyrgð á því. Nú er fólk hvatt til að reisa sér hurðarás um öxl til að greiða hækkaðar skuldir vegna forsendubrests sem ekkert þeirra ber ábyrgð á með aukinni skuldsetningu, þannig að ef allt fer á versta veg verður staðan — vegna lausnanna — verri en annars og fólk fastara í gildrunni en það hefði þurft að vera. Þá voru flest þeirra heimila sem bankarnir hirtu með verðtryggð lán, höggið kom ekki jafn hratt á verðtryggðu heimilin og þau sem voru með gengistryggð lán en það kom og þá var enga miskunn að finna. Nú er lausnin verðtryggð lán. Það er eina lausnin sem bankarnir bjóða og seinkar bara því óumflýjanlega, höggið mun koma þótt síðar verði.
Einstæða móðirin sem ég ræddi hér áðan reisti sér ekki hurðarás um öxl. Hún hefur ekki sýnt af sér ábyrgðarleysi heldur þvert á móti sýnt mikla skynsemi og yfirvegun í fjármálum sínum. Hinn svokallaði hurðarás hefur hins vegar verið lagður af fullum þunga á axlir hennar af þessari ríkisstjórn sem hefur ekki gert nokkurn skapaðan hlut til að verja þessa konu eða aðra í hennar stöðu. Það mun verða ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar til ævarandi skammar. Það minnsta sem þessi ríkisstjórn getur gert er að banna verðtryggð lán til neytenda því að þau eru ekki lausn heldur gildra sem mun leiða til langvarandi kreppu og erfiðleika fyrir þúsundir heimila. Um leið þarf hún að opna á að allir þeir sem eru með verðtryggð lán geti skipt yfir í óverðtryggð án þess að fara í greiðslumat. Ég er með tilbúið frumvarp um það sem ríkisstjórninni er velkomið að gera sínu.
Bann við verðtryggingu lána heimilanna mun ýta vöxtum niður og í skýrslu frá 2012, sem ber nafnið Verðtrygging, nauðsyn eða val?, kemur skýrt fram að verðtrygging hafi neikvæð áhrif á leiðni peningastefnu Seðlabanka Íslands út í hagkerfið. Hún er skrifuð af Ásgeiri Jónssyni, núverandi seðlabankastjóra, sem segir þar að ein helsta ástæða hárra vaxta á Íslandi sé hátt hlutfall verðtryggðra lána, því að vegna þeirra bíti vaxtahækkanir Seðlabankans bæði seint og illa. Það er því ofar mínum skilningi að Seðlabankinn skuli beita vaxtahækkunum með þeim hætti sem hann gerir og ýta sífellt fleirum yfir í verðtryggð lán. Þetta snýst hvorki um val né frelsi. Það er bara á færi sérfróðra fagfjárfesta að átta sig á verðtryggðum lánum en ekki venjulegra neytenda. (Forseti hringir.) Að kalla það val er álíka og ef læknar myndu láta sjúklingum eftir að velja lyf sín og kalla það frelsi, vitandi að sum þeirra muni leiða til viðvarandi heilsubrests til langrar framtíðar. (Forseti hringir.) Það er ekki frelsi. Valkosturinn verðtryggð lán er það ekki heldur. Verðtryggð neytendalán þarf að banna.