155. löggjafarþing — 7. fundur,  18. sept. 2024.

störf þingsins.

[15:02]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Maður hlýtur að velta því fyrir sér þessa dagana hvað það er eiginlega að vera samstarfsfús. Okkur verður stundum tíðrætt um slakt samstarf innan ríkisstjórnarinnar en við getum ekki öll alltaf valið samstarfið. Sjáum t.d. fulltrúa lögreglu sem fær það verkefni að ryðjast inn á sjúkrahús í húmi nætur og hrifsa þaðan einstaklinga á brott. Þessar aðferðir eru réttlættar á grunni hugmynda um skort á samstarfsfýsi móður og fjölfatlaðs barns. Við skulum aldrei gleyma því — við skulum aldrei gleyma því — að lögreglunni ber að fylgja skipunum til að framkvæma verkefni, m.a. þessi, verkefni sem verða að bera merki meðalhófs þegar jafn viðkvæmir einstaklingar eru annars vegar og þessa tilteknu nótt. Þetta hefur hins vegar borið þess merki að vera valdbeiting í sinni hörðustu mynd og stjórnvaldsathafnir eru á ábyrgð ráðherra og í boði þessarar ríkisstjórnar. Fyrirskipanir sem þessar eru líka alveg mjög skýrt dæmi um værukærð gagnvart lögreglufólki á vettvangi sem fær núna yfir sig holskeflu af neikvæðri umfjöllun sem var fyrirséð í alla staði.

Forseti. Á Íslandi verða framkvæmdar fleiri brottvísanir sem m.a. munu beinast gegn börnum. Það er á ábyrgð stjórnvalda að tryggja að þær geti farið fram með eins mannúðlegum hætti og hugsast getur, því að þótt það sé mögulega ekki barninu fyrir bestu að sæta brottvísun þá er ekki sama hvernig lögreglunni er gert skylt að sinna verkefnum sínum. Lögreglan þarf traust okkar og við í Samfylkingunni erum svo sannarlega samstarfsfús þegar kemur að því að leiðrétta áralanga vanrækslu (Forseti hringir.) gagnvart lögreglu og viðbragðsaðilum þessa lands í samfélagi sem tekur ört breytingum. (Forseti hringir.) En þessar aðferðir þurfum við aldrei, aldrei að sjá aftur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)