störf þingsins.
Forseti. Hvaða áhrif hefur það á samfélagið þegar fólk sér stjórnmál og stofnanir ítrekað haga sér á kaldan eða óréttlátan hátt, sérstaklega gagnvart þeim sem þegar eru í mjög erfiðri stöðu? Nýjasta dæmið af mörgum er framkoma stjórnvalda í garð Yazans Tamimis en sú framkoma er sérstaklega sjokkerandi í ljósi þess að um er að ræða langveikt barn sem biðlar nú til okkar að bjarga lífi sínu. Skilaboðin sem stjórnvöld ítrekað senda eru mjög skýr: Jaðarsett fólk og aðrir einstaklingar í viðkvæmri stöðu eiga hvorki að vera virtir né verndaðir. Þeir eru síðri og eiga því ekki umhyggju skilið. En þá er mikilvægt að spyrja: Hvaða áhrif hafa slík skilaboð á heimsmynd og hugmyndafræði t.d. barna og ungmenna? Draga slík skilaboð úr samkenndargetu ungs fólks? Hvaða áhrif hefur það á samfélagið að setja pólitíska eða skrifræðislega skilvirkni framar mannlegri reisn?
Forseti. Stefna sem stuðlar að menningu þar sem komið er fram við fólk á ómannúðlegan hátt, þar sem manneskjur verða að tölustöfum eða vandamálum sem þarf að leysa frekar en manneskjur með innbyggt virði — slík normalísering þessa virðingarleysis gagnvart mannlegri reisn smitar út frá sér og hefur áhrif á hegðun okkar allra og sérstaklega á börn og ungmenni þar sem þau eru enn að móta skilning sinn á siðferði, á samfélagi, á réttlæti. Virðingarleysi fyrir lífi annarra og velferð ýtir undir ofbeldi og grefur undan samheldni samfélagsins. Þegar fólk upplifir ekki lengur tengingu í gegnum sameiginleg gildi um umhyggju og virðingu fyrir lífi þá eykur það sundrung og spennu. Hvernig samfélagið kemur fram við sína viðkvæmustu einstaklinga endurspeglar siðferðilegan áttavita þess. Við sem samfélag, sem manneskjur, getum ekki setið hjá þegar stjórnmál, lög og samfélagsleg kerfi eru farin að vinna gegn gildum samfélagsins og grafa undan mannhelgi. (Forseti hringir.) Ef sagan hefur kennt okkur eitthvað, forseti, þá er það að þegar lögin og kerfin eru farin að vinna gegn manneskjum, (Forseti hringir.) eru farin að vinna gegn mennskunni, þá ber okkur skylda til að bylta þeim frekar en að fylgja þeim í blindni.