155. löggjafarþing — 7. fundur,  18. sept. 2024.

störf þingsins.

[15:07]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Við hernaðar- og herstöðvaandstæðingar höfum um áratugaskeið bent á mengun á svæðum þar sem Bandaríkjaher hefur og hefur haft umsvif á. Þess er skemmst að minnast frá eldgosinu á Reykjanesi þegar hætta skapaðist vegna þess að fólk var að ganga yfir hraun þar sem hætta var á að ósprungnar sprengjur myndu springa og af því gæti hlotist skaði.

Í maí árið 2021 var samþykkt hér á Alþingi þingsályktunartillaga sem flutt var af stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis um hreinsun á Heiðarfjalli á Langanesi. Hvatamaður að tillögunni var þáverandi þingmaður Vinstri grænna, Kolbeinn Óttarsson Proppé. Nú, nokkrum árum seinna, erum við að sjá að það er að komast hreyfing á þetta mál. Það var m.a. í frétt í Morgunblaðinu í gær undir yfirskriftinni „Heilsuspillandi efni langt yfir mörkum“. Norsk rannsóknastofnun, sem Umhverfisstofnun fékk til að framkvæma frumrannsókn á menguninni á Heiðarfjalli, hefur leitt í ljós að þrávirka efnið PCB, blý, asbest og olíuefni eru til staðar í styrk sem er langt umfram viðmiðunarmörk. Ég hef áhyggjur af því að þetta geti verið staðan á mun fleiri stöðum. Stefnt er að því að farið verði í kostnaðarsama hreinsun á næsta ári og það er auðvitað gott því að það er mikilvægt að hreinsa, (Forseti hringir.) en á þetta hefur verið bent, eins og ég sagði í upphafi máls míns, um áratugaskeið. Við þurfum að hreinsa hluti en svo þurfum við líka að koma í veg fyrir (Forseti hringir.) að hernaðarstarfsemi haldi áfram að menga landið okkar og það er (Forseti hringir.) auðvitað best gert með því að loka henni.