155. löggjafarþing — 7. fundur,  18. sept. 2024.

störf þingsins.

[15:10]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Mig langar til að nota þetta tækifæri og ræða m.a. það sem fram kom í góðum sjónvarpsþætti í gærkvöldi sem var í beinni útsendingu á RÚV, Torginu, þar sem ungt fólk tók til máls og ræddi af mikilli yfirvegun og skynsemi um ástandið í samfélaginu, um ofbeldi, um vanlíðan, um samfélagsmiðla og áhrif þeirra á líðan þeirra. Ég verð að viðurkenna að ég fylltist mikilli von við að hlusta á unga fólkið og það hvernig þau töluðu um líðan sína og hvernig hægt væri að breyta samfélaginu, af því að það stóð ekki á svörum hjá þeim og við þurfum að hlusta á þau og við þurfum að taka það til greina sem þau segja um notkun samfélagsmiðla og annað slíkt.

Þau veltu því fyrir sér og við, held ég, veltum því oft fyrir okkur mörg hér hvort við séum í raun orðin ónæm fyrir því ofbeldi sem birtist okkur daglega í fréttum, á fréttamyndum og á samfélagsmiðlum. Ég er gömul eins og sjá má og man þá tíð þegar ein fréttamynd gat breytt kúrsi í heimsmálunum vegna þess að þá sá fólk eitthvað sem gerðist í stríði, sem varpaði nýju ljósi á það sem var að gerast. Þannig er það ekki lengur en nú höfum við í meira en 11 mánuði á hverjum einasta degi séð fólk sprengt í tætlur á Gaza-ströndinni, börn, aðallega börn, konur, karla, og við erum orðin vön því. Ef þau sem hér eru inni hafa ekki séð þáttinn frá því í gærkvöldi þá mæli ég með honum vegna þess að unga fólkið okkar hefur áhyggjur af því að þau og við og samfélagið séum orðin algerlega ónæm fyrir ofbeldi.