155. löggjafarþing — 7. fundur,  18. sept. 2024.

störf þingsins.

[15:12]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. Í febrúar árið 2022 fékk ég svar við skriflegri fyrirspurn minni til hæstv. dómsmálaráðherra þar sem ég spurði um ofbeldishegðun ungmenna og barna. Í svarinu var mjög skýrt að ofbeldishegðun hefði aukist til muna og að vandinn væri vaxandi. Þessar upplýsingar höfðu stjórnvöld fyrir rúmlega tveimur árum síðan. Ég verð að segja að í dag er ég reið og sár yfir því á hvaða stað við erum komin sem samfélag; ung stúlka myrt af öðru barni, ungur drengur dæmdur nýlega fyrir tvær alvarlegar stunguárásir, og lengi mætti telja. Hvernig geta stjórnvöld horfst í augu við eigið aðgerðaleysi? Við vissum að alvarleg ofbeldishegðun væri að aukast með hverju árinu og að krakkar væru farnir að bera hnífa í meiri mæli. Það er þyngra en tárum taki að stjórnvöld séu oftar en ekki einungis að slökkva elda. Það er mikill skortur á framtíðarsýn og því að bregðast við málefnum áður en allt er komið í óefni.

Börnin okkar eru það saklausasta og dýrmætasta sem við eigum sem þjóð. Okkur ber að hafa þau í forgrunni. Börn hafa ekki verið forgangsatriði hjá þessari ríkisstjórn þar sem þeim líður verr, þau eru illa stödd námslega miðað við jafnaldra sína í Evrópu og þau beita meira ofbeldi. Ég vil að ríkisstjórnin sinni því hlutverki sem henni er gefið og að hún leggi allt sitt í að sinna heilsu og velferð barnanna okkar svo að við getum raunverulega verið það velferðarsamfélag sem við viljum sjá. Þetta snýst um að tryggja öryggi og tryggja að börn hljóti þá vernd sem þau þurfa til að þroskast og dafna í öruggu og heilsusamlegu umhverfi. Ég hef endað á þeim orðum áður að það er með öllu óforsvaranlegt að stjórnvöld sýni vandanum svo lítinn áhuga en í dag segi ég að nú neyðast stjórnvöld til að horfast í augu við áhugaleysi sitt og átta sig á að raunverulegra aðgerða er þörf núna strax.