störf þingsins.
Herra forseti. Í dag ætlar Flokkur fólksins að flytja frumvarp sitt um að komið verði í veg fyrir að persónuafsláttur verði afnuminn um næstu áramót af almannatryggingagreiðslum til þeirra sem búsettir eru erlendis en eru í rauninni að fá greiðslur frá íslenska ríkinu. Það hefur nefnilega valdið mikilli vanlíðan og óöryggi þessa fólks og ég er að heyra af fullorðnu fólki sem hreinlega er að hugsa um að fara að koma heim. Það getur ekki hugsað sér að missa 64.000 kr. á mánuði strax um næstu áramót og það sem meira er, þrátt fyrir að það sé verið að taka hérna fram að þeir sem eru að fá 75% frá Tryggingastofnun eða meira geti jafnvel sótt um að halda áfram að fá persónuafsláttinn sinn frá Íslandi þá breytir það ekki þeirri staðreynd að t.d. hér á Norðurlöndunum, og það er ekki búið að gera neinar ráðstafanir hvað það varðar, er kerfið nákvæmlega þannig að þeir einstaklingar, ef þetta nær fram að ganga, þessi lögleysa eins og ég vil kalla hana, munu missa strax sínar 64.000 kr. á mánuði þrátt fyrir að eiga rétt á því að halda áfram að fá greiðslur hér vegna þess að þar er bara endurskoðun eins og hér á ársfresti. Þar er bara endurskoðað árið 2025, þá verður tekinn af þeim persónuafslátturinn og þau fengju það leiðrétt árið 2026. En það er bara þannig fyrir þá sem eiga við ramman reip að draga, og hafa jafnvel þurft að kjósa með fótunum og flýja landið okkar vegna fátæktar til að reyna að ala önn fyrir sér þar sem er ódýrara að lifa, að þeir geta ekki tekið það á sig að þurfa að taka þennan skell, enda segjum við að þetta sé í raun alveg ótrúleg aðför sem við höfum ekki getað áttað okkur á hverju sæti, því þetta er ekki það sem kemur til með að skipta ríkissjóð nokkru einasta máli. En þetta kemur til með að valda þessum einstaklingum sem verða fyrir þessu höggi alveg gríðarlegum búsifjum og miklu sálarstríði.