155. löggjafarþing — 7. fundur,  18. sept. 2024.

störf þingsins.

[15:21]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Ég ætla að hefja mál mitt á tilvitnun, með leyfi forseta:

„Við ætlum að efa geðheilbrigðisþjónustu fyrir alla hópa samfélagsins, ekki síst börn og ungmenni.“

Þessi 14 orða setning úr stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er býsna afdráttarlaus: Það á að efla geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni, ekki síst börn og ungmenni meira að segja. Nú er stutt eftir af kjörtímabilinu og því er ekki ósanngjarnt að leggja mælistiku á hversu vel þetta háleita markmið hefur gengið eftir — ekkert sérstaklega vel ef marka má fréttir og umboðsmann barna. Þúsundir barna eru á biðlista eftir greiningarúrræðum og geðheilbrigðisþjónustu. Börn þurfa að bíða í tvö ár eftir ADHD-greiningu og biðlistinn er enn lengri þegar kemur að einhverfugreiningu eða þrjú ár. Það er meira en hálfs árs bið eftir sálfræðingi hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og á þriðja hundrað börn sem bíða. Tæplega 50 börn eru á biðlista hjá BUGL og þurfa að bíða í tvo til þrjá mánuði og það er löng bið eftir að komast í úrræði fyrir fjölskyldur barna sem glíma við alvarlegan hegðunarvanda.

Þetta er langt í frá tæmandi upptalning og það er því ekki að undra að umboðsmaður barna sé uggandi yfir stöðunni, enda eru biðlistarnir að lengjast. Það leiðir okkur að þeirri einföldu niðurstöðu að geðheilbrigðisþjónusta fyrir börn og ungmenni hefur að þessu leyti versnað á síðustu árum því að börn sem bíða eru jafnframt börn sem fá ekki þjónustu þegar hún er brýnust. Þetta er þvert á gefin fyrirheit. Við verðum líka að átta okkur á að þegar barn er á biðlista er öll fjölskyldan að bíða og einnig að tvö til þrjú ár í lífi barns eru eins og heil eilífð. Við vitum ósköp vel að það er slegist um hverja krónu í ríkiskassanum og það þarf að forgangsraða peningunum okkar. Börn og ungmenni eiga að vera í forgangi, ekki bara á blaði sem meitluð setning í stjórnarsáttmála heldur í raunverulegum aðgerðum og úrræðum. Biðlistar eiga styttast en ekki að lengjast og þeim þarf helst að útrýma. Börn eiga ekki að vera á biðlistum mánuðum og árum saman.