störf þingsins.
Forseti. Íslendingum er tamt að bera árangur efnahagsstjórnunar á Íslandi við nágrannalöndin og berum við okkur þá gjarnan saman við hinar norrænu þjóðir, Noreg, Danmörku, Svíþjóð og Finnland. Þó er miklum mun nærtækara að bera íslenska hagkerfið og stjórnun þess saman við hagstjórn í Færeyjum þar sem færeyska hagkerfið er mun líkara íslenska hagkerfinu, bæði að stærð og samsetningu. Það er mjög athyglisvert að framkvæma slíkan samanburð. Tilfellið er að verðbólga er lægri í Færeyjum, það er meiri stöðugleiki í ríkisfjármálum í Færeyjum og Færeyingar hafa náð okkur og gott betur í landsframleiðslu á mann. Nú mætti ætla af þeim orðum sem gjarnan falla í þessum ræðustól að þetta hlyti að vera sökum þess að Færeyjar eru með alveg einstaklega færan seðlabankastjóra en tilfellið er að þeir eru með engan. Tilfellið er að Færeyingar hafa valið fyrirkomulag í sínum gjaldeyrismálum sem er nokkuð frábrugðið Íslendingum, þ.e. færeyska krónan er beintengd dönsku krónunni sem síðan er beintengd evru. Ég átti samtal við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um þetta og beindi raunar spurningu til hans um það hvort við gætum ekki lært nokkuð af Færeyingum í þessum efnum. Því tók hæstv. ráðherra fremur vel. Það sem þessi samanburður sýnir þó fyrst og fremst er að ábyrgðarfráskrift hæstv. fjármálaráðherra á aðhaldi til að ná niður verðbólgu er auðvitað fráleit og nægir þar að horfa til þessa samanburðar við okkar næstu grannþjóð.