störf þingsins.
Herra forseti. Í tilefni Evrópsku samgönguvikunnar sem nú stendur yfir er kannski rétt að þakka þeim sem helst ber að þakka þann árangur sem náðst hefur í loftslagsmálum á Íslandi á síðustu árum, fólkinu sem leggur bensínbílum og tekur upp annars konar samgöngumáta, fólkinu sem fer bara að labba og hjóla á milli staða. Ég held samt að það þurfi ekki miklar þakkir af því að þetta fólk fær ferska loftið og gleðina í staðinn. Það verður sprækara og hressara fyrir vikið. En það sem það gerir líka er að það minnkar álagið á samgönguinnviðina sem við þurfum öll að stóla á, það dregur úr losun og það bætir umhverfið og loftslagið. Þess vegna kom það mér á óvart þegar ég spurði hæstv. fjármálaráðherra, í umræðum hér fyrr í vikunni, út í ívilnun til þeirra sem kaupa sér reiðhjól og rafmagnsreiðhjól að fjármálaráðherra viðurkenndi að það stæði bara alls ekki til að framlengja þá ívilnun. Við þurftum að berjast fyrir því fyrir ári að halda þessum stuðningi til streitu en ráðherra er bara sáttur við að láta hann renna út — með orðunum, með leyfi forseta: „… ríkissjóður verður auðvitað líka að fá tekjur.“
Ég get lofað herra forseta að reiðhjólamenn eru ekki sú fjárhít sem getur snúið rekstri ríkissjóðs sem hann vill vera láta. Þetta minnir því miður á það sem hæstv. umhverfisráðherra sagði við sama tilefni fyrir ári þegar hann sagði nei, nei, nei við því að framlengja en svo sagði þingið já og ráðherra þurfti að bíta í það súra epli. Umhverfisráðherra sagði: „Það er ekki bannað að spara í ríkisrekstri …“ — maðurinn sem er metnaðarfyllri fyrir því að skera niður á fjárlögum en að skera niður í losun.
Núna þurfum við að taka boltann, herra forseti. Við þurfum að sýna í verki að við stöndum með fólkinu (Forseti hringir.) sem sýnir í verki að það sé tilbúið til að breyta samfélaginu í þágu loftslagsins og í þágu þess að fylla lungun fersku lofti, líka þegar er skítaveður eins og þau gerast sum (Forseti hringir.) allt árið um kring. 550 milljónir fara í þessa ívilnun (Forseti hringir.) á þessu ári. Borið saman við 1.100 milljónirnar sem á að niðurgreiða losun flugfélaganna um á næsta ári þá held ég að ríkisstjórnin ætti að geta brotið odd af oflæti sínu og stutt þessa þróun (Forseti hringir.) sem er í þágu hennar eigin loftslagsmarkmiða.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir hv. þingmenn á ræðutímann sem er takmarkaður við tvær mínútur í störfum þingsins.)