155. löggjafarþing — 7. fundur,  18. sept. 2024.

breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl.

36. mál
[15:38]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld, nr. 102/2023 (persónuafsláttur lífeyrisþega). Flutningsmenn með mér á þessu máli eru þingflokkur Flokks fólksins.

1. gr. hljóði svo:

„A-liður 11. gr. laganna fellur brott.“

2. gr.:

„Orðin „og a-liður 11. gr.“ í 1. mgr. 36. gr. laganna falla brott.“

3. gr.:

„Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Í greinargerð með frumvarpinu segir að frumvarp þetta hafi áður verið lagt fram á 154. löggjafarþingi, sem sagt síðastliðnu löggjafarþingi, 1087. mál. Það náði ekki fram að ganga og er nú lagt fram að nýju óbreytt. Með frumvarpi þessu er lagt til að fella úr gildi ákvæði sem mun að óbreyttu fella niður persónuafslátt lífeyrisþega sem búsettir eru erlendis og mun sú framkvæmd ná fram að ganga 1. janúar næstkomandi.

Hinn 16. desember 2023 samþykkti Alþingi breytingu á 70. gr. laga um tekjuskatt sem fellir niður persónuafslátt lífeyrisþega sem búsettir eru erlendis. Umrædd breyting var hluti af gistináttabandorminum svokallaða en í því frumvarpi var fjallað um fyrirkomulag gistináttaskatts auk þess sem gerðar voru ýmsar breytingar á öðrum lögum. Sú breyting sem felldi niður persónuafslátt lífeyrisþega, a-liður 11. gr. frumvarpsins, hlaut ekki mikla umfjöllun í greinargerð frumvarpsins og vakti ekki athygli nefndarmanna efnahags- og viðskiptanefndar fyrr en umsögn barst frá ÖBÍ réttindasamtökum hinn 7. desember, en þá var efnislegri umfjöllun um frumvarpið lokið og strax á næsta fundi nefndarinnar var það afgreitt til 2. umræðu.

Þegar þessi þáttur mætir inni í þessum bandormi þá komum við gjörsamlega af fjöllum. Við höfðum ekki heyrt þetta, við höfðum ekki séð þetta, enda hafði í rauninni ekki verið send umsagnarbeiðni til ÖBÍ ef ég man rétt. ÖBÍ benti einnig á í umsögn sinni að engin greining á áhrifum breytinganna lægi fyrir og jafnframt að umrædd breyting kynni að hafa veruleg áhrif á fjárhag fjölda lífeyrisþega.

Þingmenn Flokks fólksins vöktu athygli á umsögn ÖBÍ við 2. umræðu málsins á Alþingi og kölluðu eftir því að frumvarpið gengi aftur til nefndar milli 2. og 3. umræðu til að ræða nánar a-lið 11. gr. þess. Eftir umræðu í nefndinni milli 2. og 3. umræðu náðist samkomulag um að fresta gildistöku a-liðar 11. gr. til 1. janúar 2025 eða um eitt ár og frumvarpið, svo breytt, var samþykkt hinn 16. desember.

Að þessu gefna tilefni vil ég náttúrlega þakka samstöðu stjórnarandstöðunnar sérstaklega fyrir það hvernig við tókum utan um málið sameiginlega fyrir jólin í fyrra og það var eingöngu okkur að þakka, stjórnarandstöðunni, að þessu máli var frestað. En betur má ef duga skal og við þurfum að koma í veg fyrir að þetta mál nái yfir höfuð fram að ganga í því formi sem það hefur verið lagt fram.

Skömmu síðar, skömmu eftir að frumvarpið var samþykkt og allt það og við náðum fram þeirri breytingu að gildistöku þessa tiltekna ákvæðis yrði frestað, hinn 27. desember, sendi Tryggingastofnun engu að síður tilkynningu til lífeyrisþega sem búsettir voru erlendis þess efnis að um áramótin myndi persónuafsláttur þeirra falla niður. Hugsið ykkur, fjórum dögum fyrir útborgun fengu lífeyrisþegar tilkynningu um að þeir myndu missa 64.000 kr. af laununum sínum. Hvers lags stjórnsýsla er þetta? Hvers lags ofbeldistaktík er þetta? Fólk kom gjörsamlega af fjöllum. Svo virðist einhvern veginn sem stjórnvöld hafi ekki tekið eftir því að gildistöku áðurnefnds ákvæðis hafði jú verið frestað um heilt ár og þá kom í ljós hver raunveruleg áhrif hefðu orðið ef ekki hefði verið fyrir baráttu þingmanna Flokks fólksins og stjórnarandstöðunnar, að koma frestun á málinu til framkvæmda, þannig að um 3.000 einstaklingar sem hefðu orðið fyrir tekjuskerðingu 1. janúar 2024 um allt að 700.000 kr. á ársgrundvelli — þannig að það var alveg ljóst að við afstýrðum miklu tjóni þegar gildistöku ákvæðisins var frestað. En það breytti ekki þeirri staðreynd að framkvæmdin var látin ná fram að ganga engu að síður, því að almannatryggingaþegar fengu ekki persónuafsláttinn sinn 1. janúar 2024. Hann var felldur niður þannig að þau sátu eftir með þetta miklu minna í umslaginu, vissu ekkert af hverju og þetta var bara áfall. Þetta var nýársgjöfin, algjört áfall fyrir fólk sem á um sárt að binda fyrir, að stærstum hluta.

Samkvæmt umfjöllun í greinargerð um a-lið 11. gr. átti breytingin ekki að hafa mikil áhrif og var hún lögð til vegna þess að almennt eru persónuívilnanir vegna skattskyldu aðeins veittar í búseturíki. Það kom fram í svari fjármála- og efnahagsráðuneytis við fyrirspurn Ríkisútvarpsins að breytingin hefði þótt nauðsynleg vegna þess að dæmi væru um að einstaklingar fengju persónuafslátt af skatttekjum sínum í bæði heimaríki og búseturíki og þarna kemur punkturinn. Þarna kemur nefnilega punkturinn. Þarna verð ég bara að koma með innlegg sem kom frá tveimur hv. þingmönnum Sjálfstæðisflokksins sem sögðu það einfaldlega við hv. þingmann Flokks fólksins að það væru dæmi um að hér væru nú einhverjir uppar og kampavínskóngar á golfvöllum úti á Spáni sem væru í raun að hirða tvöfalda ívilnun, bæði frá spænska ríkinu og því íslenska. Þetta er náttúrlega svo ömurleg framsetning og ömurlegur málflutningur að það tekur eiginlega ekki nokkru tali og gekk gjörsamlega fram af mér. Það skal tekið fram að ekki liggja fyrir nein gögn um hve margir njóta slíkrar tvöfaldrar ívilnunar eins og þarna var verið að ýja að og virðist vera tilurðin að því að það eigi að svipta alla aðra persónuafslætti um næstu áramót.

Persónuafsláttur er ekki styrkur. Við skulum bara átta okkur á því. Persónuafsláttur er ekki styrkur heldur afsláttur af greiðslu skatta. Það fær því enginn að njóta slíks afsláttar nema hann greiði skatta til Íslands. Það er nú ekki mikið flóknara en það. Flestir lífeyrisþegar sem búsettir eru erlendis eru almannatryggingaþegar sem hafa flutt þangað vegna bágra kjara á Íslandi. Fólk sem lifir á lífeyristekjum er í viðkvæmri stöðu fyrir breytingum sem minnka skyndilega tekjur þess um hátt í 30% á einni nóttu.

Ýmsir hafa bent á að þegar ákvæðið tekur gildi um næstu áramót, ef af verður, geti lífeyrisþegar sótt um undanþágu og haldið persónuafslætti sínum ef 75% af tekjum þeirra koma frá Íslandi. En sú undanþáguregla hefur ekki verið kynnt lífeyrisþegum enn og hér erum við sem sagt að nálgast október. Þetta er afar sérstakt í ljósi þess að á hana hefði reynt strax um áramótin ef ekki hefði tekist að fresta gildistökunni fyrir síðustu áramót. Þá er ljóst að margir öryrkjar og eldri borgarar sem búsettir eru erlendis þurfa aðstoð við að gæta réttar síns að þessu leyti, fylla þá út eyðublöð og koma þeim á réttan stað í stjórnsýslukerfinu í tæka tíð. Þá má vel hugsa sér fjölmörg dæmi þar sem lífeyrisþegar falla ekki innan þeirrar undanþágu án þess að eiga rétt á sambærilegri persónuívilnun erlendis frá.

Sagan sýnir að stjórnvöld gera oft breytingar sem íþyngja þegnunum mjög án þess að þeim fylgi nokkur ábati. Flutningsmenn þessa frumvarps telja nauðsynlegt að afstýra því að þúsundir Íslendinga sem búsettir eru erlendis missi persónuafslátt um næstu áramót.

Af þessu tilefni verð ég að tala til þeirra sem hafa í rauninni mjög miklar áhyggjur af framvindu málsins sem á að ná fram að ganga núna 1. janúar að óbreyttu. Fyrir þinglok í sumar tjáði hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra mér það að hann hefði skipað nefnd sem myndi koma með skýrslu til hans 1. nóvember næstkomandi sem væntanlega væri þá búin að teikna upp og svara þeim annmörkum sem ég var að vísa hér til. Þá hlýtur það að liggja fyrir núna 1. nóvember næstkomandi. En það breytir ekki þeirri staðreynd að það á aldrei nokkurn tíma að verða þannig að einstaklingur sem á þennan rétt og er með yfir 75% tekna sinna frá Íslandi eigi að þurfa að sýna frumkvæði í því að sækja um undanþáguna, að sækja um að fá að halda persónuafslættinum sínum áfram hér heima á Íslandi. Að sjálfsögðu á það að vera þannig að hann á að þurfa að sækja um ef hann vill í rauninni ekki þiggja persónuafsláttinn frá Íslandi heldur einhvers staðar annars staðar. Við eigum ekki vísvitandi að reyna að íþyngja ítrekað þeim sem síst skyldi, eldra fólki og öryrkjum, sem er stærsti hluti þeirra sem við erum að tala um hér, enda erum við eingöngu að tala um einstaklinga sem fá greiðslur úr almannatryggingum. Ég hef ekki enn þá séð aðrar svona aðfarir að neinum öðrum en almannatryggingaþegum, engum. En það er eins og við manninn mælt, ég er nú búin að vera hér á hinu háa Alþingi sjö ár og það hefur ekkert farið á milli mála hverjir það eru sem mega í rauninni alltaf fá einn á lúðurinn, hverjir það eru sem eru látnir axla alla ábyrgð, hverjir það eru sem ítrekað taka á sig óráðsíu stjórnvalda, hverjir eru með bognustu bökin, eiga bágast í samfélaginu, eru fátækastir í samfélaginu en á þeim er níðst mest allra. Þessi bognu bök má beygja meira. Það er treyst á það hér af þessum stjórnvöldum að þau brotni ekki en svo brotna krosstré sem önnur tré. Það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að leggja á fólk sem er að berjast í bökkum hvern einasta dag við að ná endum saman. Það eru jú öllu takmörk sett.

Ég segi ekkert annað en það að við í Flokki fólksins munum berjast gegn því að þetta sem var samþykkt hér í bandorminum fyrir jólin muni nokkurn tíma ná fram að ganga. Þess vegna leggjum við fram frumvarp sem kemur í veg fyrir það og fellir úr gildi a-lið 11. gr., fellir algerlega úr gildi möguleikana á því að svipta fólk persónuafslættinum um næstu áramót, enda er það hrein og klár aðför að einstaklingum sem síst skyldi.