155. löggjafarþing — 7. fundur,  18. sept. 2024.

breyting á ýmsum lögum til að bæta stöðu trans fólks.

65. mál
[15:54]
Horfa

Flm. (Andrés Ingi Jónsson) (P):

Herra forseti. Það er þannig að mannréttindabaráttu lýkur aldrei. Það er alltaf hægt að gera betur þegar kemur að því að styrkja og styðja við mannréttindi fólks. Þetta frumvarp hér er hugsað sem liður í því að halda áfram að auka réttindi trans fólks í samfélaginu, að styðja við hóp sem fékk ansi trausta lagaumgjörð með samþykkt laga um kynrænt sjálfræði hér á þingi fyrir fimm árum en þá umgjörð þarf að treysta betur. Það þarf að sníða af henni skavanka sem hafa komið í ljós í framkvæmdinni og það þarf að taka á atriðum sem ekki var tekið á þegar lögin voru sett á sínum tíma.

Það frumvarp sem við ræðum hér til að bæta stöðu trans fólks felur í sér tvenns konar breytingar. Í fyrsta lagi er lagt til að hægt sé að breyta öllu nafninu sínu óháð kynskráningu í þjóðskrá en í dag gildir það bara um eiginnöfn. Í öðru lagi er lagt til að fólk með hlutlausa skráningu í þjóðskrá geti valið vegabréf með þá kynskráningu sem því finnst líklegust til að tryggja því öryggi á ferðalögum. Í þriðja lagi er gert einfaldara að breyta kynskráningu oftar en einu sinni. Í fjórða lagi er lagt til að skilríki sem þarf að endurnýja í tengslum við breytta kynskráningu verði gjaldfrjáls.

Þetta mál er lagt fram öðru sinni. Á síðasta vetri kláraðist það ekki en gekk til nefndar og var sent til umsagnar. Umsagnir voru almennt mjög jákvæðar og við fengum fram sjónarmið frá t.d. Kvenréttindafélagi Íslands, samtökunum Trans Íslandi, Intersex Íslandi, og örugglega, minnir mig, Samtökunum '78, þar sem var varpað ljósi á nauðsyn sumra þeirra breytinga sem hér eru til umræðu. Síðan kom ansi góð umsögn frá Þjóðskrá sem benti á tæknilega örðugleika við að hrinda í framkvæmd þeirri lausn sem við sáum á vegabréfavandanum eins og var í frumvarpinu á sínum tíma, en þau lögðu til að við færum aðra leið sem við erum að prufukeyra í frumvarpinu eins og það liggur fyrir í dag.

Ég ætla að fara aðeins nánar út í þessa fjóra þætti frumvarpsins, bara til að útskýra hvað vakir fyrir okkur. Sá fyrsti snýst um að kynskráning stýri því ekki hvers konar foreldrisnöfn fólk má velja sér. Það var nefnilega þannig, þegar lög um kynrænt sjálfræði voru samþykkt, að allar hömlur voru teknar af eiginnafni þannig að það er ekkert til lengur í rauninni sem heitir nafn sem bara karlar geta borið eða bara konur, hvað þá að það séu til einhver sérstök eiginnöfn fyrir kvár heldur getum við bara öll valið það sem okkur lystir. Ég gæti t.d. farið til Þjóðskrár í dag og tekið upp nafnið Steinunn Þóra Jónsson, svo ég líti hér á ágætan nafnhafa úti í sal, og það með því að halda minni kynskráningu óbreyttri sem karl. Hið sama gildir hins vegar ekki um eftirnöfnin. Karlar skulu samkvæmt lögum bera nafn sem vísar til foreldris með viðskeytinu -son. Konur skulu bera það sama með viðskeytinu -dóttir en fólk með hlutlausa skráningu kyns hefur þann sveigjanleika að geta valið -son eða -dóttir eða kynhlutlausa hliðstæðu sem er -bur, eða vísað til foreldris án endingar, þannig að ég gæti verið Andrés Ingi Jóns, svo að við tökum dæmi.

Það er lagt til í 1. gr. frumvarpsins að stíga sama skrefið varðandi foreldrisnöfnin og var gert varðandi eiginnöfnin á sínum tíma þannig að það skipti ekki máli þó að þú sért búinn að stíga það skref að velja hlutlausa skráningu í þjóðskrá, þú getir mótað foreldranafnið þitt að eigin vilja, að eigin upplifun, án þess að þurfa að máta þig inn í einhvern tiltekinn kassa hjá Þjóðskrá. Þetta held ég reyndar að myndi gagnast ýmsum öðrum eins og er reyndar oftast raunin með mannréttindabaráttu jaðarhópa. Þær gagnast samfélaginu í heild oft líka, þannig að ég held nú bara að heill hellingur af fólki gæti hugsað sér að leysa aðeins upp foreldrisnafnið sitt og sleppa þessu -son eða -dóttir, gæti orðið pínu svona skemmtilega fljótandi framkvæmd á þessu.

Í 1. gr. eru líka settar fram ýmsar aðrar breytingar sem leiða af þessu á lögum um mannanöfn þar sem í lögunum er enn þá vísað til föður- og móðurnafna. Við leggjum bara til að það sé vísað til foreldrisnafna til að endurspegla að það sé ekki tvíhyggjan lengur heldur sé bara verið að horfa til fólksins í kynslóðinni á undan okkur sem heitir foreldrar og í þeim tilvikum þar sem barn er ófeðrað verði leyft að vísa í kenninafni til stórforeldris. Þar notum við hið snotra nýyrði sem kom út úr hýryrðakeppni Samtakanna '78 síðastliðið haust, stórforeldri sem regnhlífarhugtak yfir ömmur og afa og fólk með hlutlausa kynskráningu sem er í sama ættlið og þau.

Í öðru lagi er lagt til að fólk með hlutlausa skráningu í þjóðskrá geti valið vegabréf með þá kynskráningu sem því finnst líklegust til að tryggja því öryggi á ferðalögum. Þetta kann sumum að koma spánskt fyrir sjónir en þetta þekkjum við mörg sem höfum átt samtöl við kvár eða aðstandendur þeirra. Ég þekki margar fjölskyldur ungmenna sem hafa áhyggjur af því hvernig verði komið fram við stálpin þeirra á ferðalögum ef hinseginleiki þeirra opinberast fólki í samfélögum sem eru fordómafyllri en það sem við búum í. Þetta kemur líka fram í rannsókn sem er vísað til hér í greinargerð frumvarpsins sem var unnin fyrir Kvenréttindafélag Íslands, þar sem kom fram að þessi ótti, óttinn við að lenda í áreitni og jafnvel upp í ofbeldi á ferðalögum, verði til þess að margt fólk veigrar sér við að velja hlutlausa skráningu í þjóðskrá vegna þess að henni fylgir að þú færð endurnýjað vegabréf með hinni nýju kynskráningu í. Þar ertu bara með það svart á hvítu, bókstaflega, að þú sért kynsegin. Frá því að þetta frumvarp var lagt fram síðast hefur reyndar orðið ein ágæt lagfæring. Þjóðskrá er farin að gefa út nýja tegund af nafnskírteinum sem eru gild ferðaskilríki innan Schengen-svæðisins og fyrir utan að vera ansi smart þá er engin kynskráning á þeim. Þannig er búið að slá aðeins á áhyggjur fólks af öryggi á ferðalögum innan Schengen-svæðisins en eftir stendur afgangurinn af heiminum. Því er lagt til að fólk með hlutlausa skráningu í þjóðskrá geti sagt til um það hvaða kynskráningu það vilji láta koma fram í vegabréfi. Við erum einfaldlega að fela þeim sjálfum að meta hvernig þau geti best tryggt öryggi sitt á ferðalögum. Það er enginn sem veit það betur en þau sjálf.

Í fyrri útgáfu frumvarpsins var lagt til að fólk með hlutlausa skráningu gæti fengið aukavegabréf útgefið. Þar vorum við nú að hugsa til þess að það er sæmilega stór hópur í samfélaginu sem er með fleiri en eitt vegabréf, við þingmenn þar á meðal getum verið með sérstakt þjónustuvegabréf sem við notum þegar við erum í opinberum erindagjörðum þannig að kerfið okkar býður alveg upp á að vera með tvö eintök af þessum ferðaskilríkjum. Hins vegar benti Þjóðskrá á í umsögn sinni að kerfi hennar byði ekki upp á tvær ólíkar skráningar í slíkum skilríkjum þannig að það væru ýmis sjónarmið líka varðandi öryggi þeirra skilríkja sem gerði þá framkvæmd dálítið flókna. Við hlustuðum á þá umsögn og leggjum því hér í staðinn til að hægt sé að stýra þessu, fólk geti bara valið sjálft það vegabréf sem hentar. Þar með minnkar vonandi þröskuldurinn fyrir fólk að stíga það skref sem það vill stíga, að velja sér hlutlausa kynskráningu í þjóðskrá í samræmi við sinn vilja án þess að þurfa einhvern veginn að óttast hvers konar skilríki ríkið rétti því fyrir vikið.

Í þriðja lagi er lagt til að auðvelda skráningarferli fyrir þau sem kjósa að breyta skráningu kyns oftar en einu sinni. Þetta er nú lítil breyting, myndi ég segja, snýst í rauninni bara um það, kannski meira prinsippatriði, að í gildandi lögum má fólk breyta skráningu oftar en einu sinni, sem er alveg eðlilegt í ljósi þess að oft er þetta dálítið flæðandi ferli hjá fólki, það fer úr einni kynskráningu yfir í aðra og síðan kannski þá þriðju einhverjum árum síðar, bara eftir því sem einstaklingurinn þroskast og uppgötvar sjálfan sig betur. Það sem þarf að gera samkvæmt gildandi lögum er að það þarf að sækja um til Þjóðskrár. Það þarf að rökstyðja það og eftir því sem ég heyri er þröskuldurinn fyrir því ekkert mikill. Ég hef komist að því í kringum þessi mál að Þjóðskrá er mjög viðmótsþýð þegar kemur að því að taka kynsegin samfélaginu okkar vel. Hins vegar er ákveðið prinsippatriði að á sama tíma og lög um kynrænt sjálfræði gera fólki alveg frjálst að skilgreina kyn sitt sjálft þá eigum við líka að hafa þessa skráningu alveg frjálsa í samræmi við það. Til viðbótar er síðan búið að setja inn í greinina hjáleið í rauninni, eða svona flýtileið, að ef sérstakar ástæður kalla á að fólk breyti kynskráningunni innan skemmri tíma en eins árs aftur þá geti það rökstutt það sérstaklega. Það er hugmynd sem ég ætla ekkert að láta eins og við höfum fundið upp á heldur bara stálum við þessu lóðbeint úr nýlegum lögum í Finnlandi um breytingar á kynskráningu.

Í fjórða lagi, aftur lítið atriði en ákveðið prinsippmál, er lagt til að þau skilríki sem þarf að endurnýja í tengslum við það að fólk breyti kynskráningu séu gjaldfrjáls, bæði af því að með því sýnum ákveðinn stuðning fólki sem er að leiðrétta skráningu kyns hjá hinu opinbera, þetta eru oft ekki auðugustu einstaklingar samfélagsins, þetta er fólk sem ber gjarnan mikinn kostnað vegna heilbrigðisþjónustu á sama tíma og það er að ganga í gegnum þetta skráningarferli en líka bara vegna þess að það er hagur hins opinbera að skráning í þjóðskrá sé sem réttust. Ef kostnaður er einhvern veginn farinn að valda því að fólk veigri sér við að breyta kynskráningu í þjóðskrá þá er þjóðskrá bara með vitlausari upplýsingar en hún gæti verið ef við myndum bara ryðja þessari kostnaðarhindrun úr vegi.

Ég hef farið yfir þessi fjögur meginatriði sem lögð eru til með þessu frumvarpi og langar bara að leggja til að frumvarpið gangi eins og síðast til allsherjar- og menntamálanefndar. Ég klára kannski bara á sama stað og ég byrjaði, með því að minna okkur á að það sé ekki bara að mannréttindabaráttu lýkur aldrei heldur þurfum við stöðugt að sækja fram í mannréttindabaráttunni. Núna erum við að upplifa bakslag í samfélaginu á ýmsum sviðum, m.a. varðandi réttindi hinsegin fólks, og kynsegin sérstaklega. Þegar svo árar þurfum við hér á þingi að sýna stuðning okkar í verki. Við þurfum að standa með viðkvæmum og jaðarsettum hópum og það gerum við best, við mætum bakslagi í jafnréttismálum best með því að sækja fram. Við sækjum fram í málefnum trans fólks með því að ná saman um þær breytingar sem lagðar eru til í þessu frumvarpi.