155. löggjafarþing — 7. fundur,  18. sept. 2024.

breyting á ýmsum lögum til að bæta stöðu trans fólks.

65. mál
[16:16]
Horfa

Flm. (Andrés Ingi Jónsson) (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu og stuðninginn sem hún lýsir yfir. Við áttum orðastað hér fyrir ári og þar lýsti hún einmitt þessum áhyggjum að útfærslunni varðandi vegabréf og ég lýsti mig sömuleiðis reiðubúinn til að skoða það. Þetta snýst allt um að finna einhverja praktíska leið fram á við. Ég held að ef allsherjar- og menntamálanefnd hefði ákveðið síðasta vor að keyra þetta mál í gegn hefði útfærslan orðið eitthvað svipuð því sem er í frumvarpinu eins og það liggur fyrir í dag. Það hefði bara verið góð breyting. Það verður áhugavert að sjá hvernig umsagnaraðilar taka þessari útfærslu, hvort við séum hér búin að hitta á einhvern meðalveg á milli þess sem við gætum kallað ýtrustu kröfur kynsegin samfélagsins og eðlilegrar íhaldssemi ríkisstofnunar sem þarf að sjá um framkvæmdina. Það þarf einhvern milliveg.

Hvað varðar möguleikann á að breyta kynskráningu oftar en einu sinni ætla ég ekki að halda því fram að ég sé ósammála þingmanninum um að auðvitað væri kannski einfaldast að sleppa bremsunum alveg og leyfa fólki að breyta kynskráningu hvenær sem er. Ég held hins vegar að ríkisstofnunin sem sér um það gæti verið dálítið íhaldssöm á að taka vel í það, en kannski verður hægt að spyrja hana að því við umfjöllun nefndarinnar. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, þótt hún hafi þar verið að tala um hópinn sem gæti viljað breyta kyni aftur eins hratt og hægt er og á það í raun við allan hópinn sem frumvarpið snýst um, að þetta er lítill hópur en fyrir einstaklingana í þessum litla hópi eru þetta gríðarlega miklir hagsmunir. Þess vegna skiptir þetta mál máli.