skipun nefndar til að greina sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda í heimsfaraldri kórónuveirunnar í ljósi mannréttindakafla stjórnarskrárinnar.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um skipun nefndar til að greina sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda í heimsfaraldri kórónuveirunnar í ljósi mannréttindakafla stjórnarskrárinnar. Flutningsmenn, auk þess sem hér stendur, eru hv. þingmenn Hildur Sverrisdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Jón Gunnarsson og Vilhjálmur Árnason. Í tillögunni er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að skipa nefnd þriggja óháðra sérfræðinga til að greina sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda í heimsfaraldri kórónuveirunnar í ljósi 67., 71. og 75. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og að skipan nefndarinnar fari eftir tilnefningum Lagastofnunar Háskóla Íslands, Lögmannafélags Íslands og dómstólasýslunnar sem tilnefnir jafnframt formann. Skýrslan verði kynnt hér á þingi haustið 2025.
Þess ber að geta að þetta er í annað skipti sem þessi tillaga er lögð hér fram. Hún var einnig lögð fram á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga. Hún er endurflutt hér óbreytt. Lagalegar hliðar sóttvarnaaðgerða voru ekki til skoðunar í skýrslu nefndar um áfallastjórnun stjórnvalda í Covid-19 sem skilað var til forsætisráðherra í október 2022. Í þeirri skýrslu er þó talið athyglisvert að ekki hafi í ríkara mæli verið leitað formlegrar heimildar Alþingis vegna opinberra sóttvarnatakmarkana. Flutningsmenn eru sannfærðir um að brýnt sé að þessi úttekt sem hér er lögð til fari fram áður en næsti heimsfaraldur ríður yfir, sem vonandi verður sem lengst í, og að okkur sé með þeim hætti gert auðveldara að draga lærdóm af þessum ömurlega faraldri sem við viljum helst gleyma á öllum sviðum, ekki síst er varðar þær aðgerðir sem gripið var til og voru til þess fallnar að skerða frelsi og ferðir almennings.
Nú skal það tekið fram, herra forseti, að í upphafi þessa heimsfaraldurs, þegar gripið var til fyrstu aðgerða hér, studdi ég, líkt og ég hygg flestir, þær aðgerðir enda var óljóst við hvaða vágest var að glíma, hversu hættulegur hann var o.s.frv. Um það verður ekki deilt að ein af frumskyldum stjórnvalda á hverjum tíma er að tryggja öryggi borgaranna, líf þeirra og heilsu gagnvart hvers konar utanaðkomandi ógnum jafnt sem ógnunum innan lands, tryggja eignarréttinn en tryggja líka frelsi einstaklinga til orðs og æðis. Það er í umboði borgaranna og í krafti þingræðis sem ríkisvaldið setur almennar leikreglur að frumkvæði löggjafans og ber ábyrgð á því að þeim sé framfylgt. Ég lýsti hins vegar yfir efasemdum um réttmæti þeirra sóttvarnaaðgerða sem gripið var til sumarið 2020, gerði það opinberlega í blaðaskrifum, í viðtölum við fjölmiðla og í ræðum. Efasemdir mínar fóru vaxandi eftir því sem vitneskja okkar um veiruna varð meiri, þegar ég áttaði mig á því að sóttvarnaaðgerðirnar væru í besta falli byggðar á mjög veikum lagalegum grunni. Ég lýsti yfir miklum efasemdum um það að heilbrigðisyfirvöld gætu sótt stuðning í sóttvarnalög eins og þau voru á þeim tíma fyrir aðgerðum sínum, og skipti í rauninni engu hversu skynsamlegar þær þóttu vera. Að minnsta kosti væru stjórnvöld komin fram á bjargbrún hins löglega.
Það er svo að borgaraleg réttindi okkar allra eru varin í stjórnarskrá. Þau verða ekki afnumin, ekki einu sinni tímabundið, með reglugerðum eða án beins atbeina löggjafans og undir ströngu eftirliti hans, löggjafans sem fulltrúa borgaranna. En eins og við munum öll var Alþingi á þessum tíma að stórum hluta lamað. Það dró úr möguleikum Alþingis, löggjafans, á að veita stjórnvöldum nauðsynlegt aðhald, spyrja spurninga og ef þörf hefði verið, sem líklegast hefur komið í ljós, að setja þeim stólinn fyrir dyrnar. En vandinn var víðtækari en svo vegna þess að hér fór fram atlaga að málfrelsinu. Það var gert af stjórnmálamönnum, var gert af mörgum í heilbrigðisstéttinni, það var gert af fjölmiðlum o.s.frv. þar sem með skipulögðum hætti var reynt að þagga niður í öllum þeim gagnrýnisröddum sem settar voru fram, jafnvel þeim sem voru settar fram af hófsemd. Spurningar voru jafnvel ekki leyfðar. Þetta var ekki bundið við Ísland. Þetta var alþjóðlegt vandamál sem við sáum gerast í flestum ríkjum í Bandaríkjunum, Bretlandi og víðast á Norðurlöndunum, líklegast með einni heiðarlegri undantekningu sem var Svíþjóð sem greip ekki til þeirra sóttvarnaaðgerða og takmarkana á borgaralegum réttindum sem annars staðar var gert.
Það er þannig, herra forseti, að það sannaðist í heimsfaraldrinum að óttinn, vegna þess að við vorum rekin áfram af ótta, kallar á sitt fyrsta fórnarlamb og fyrsta fórnarlamb óttans er frelsið. Um leið hverfur umburðarlyndið, umburðarlyndi gagnvart ólíkum skoðunum eins og ég nefndi hér áðan. Þess vegna átti umræða, gagnrýnin umræða, um sóttvarnaaðgerðir hér á Íslandi sem og annars staðar, þó að við höfum kannski að hluta til beitt vægari aðgerðum en sum önnur lönd, mjög erfitt uppdráttar. Við þurfum að læra af því og við þurfum að koma í veg fyrir það að þegar við þurfum að eiga við utanaðkomandi ógn, hvort heldur það er ógn vegna veiru, hættulegs sjúkdóms, faraldurs, að við pössum að ganga ekki þannig fram að spurningar séu ekki leyfðar, að gagnrýnin sé þögguð niður með skipulegum hætti. Það er líka þannig að þegar frjálsir einstaklingar hlýða athugasemdalaust og án gagnrýni fyrirmælum stjórnvalda sem takmarka borgaraleg réttindi þá er leiðin mörkuð til helsis, til forræðishyggju. Þetta er jarðvegur valdstjórnar sem verður til þar sem flestu er viðkemur mannlegri hegðun verður stjórnað með reglugerðum og valdboðum.
Ég geri mér grein fyrir því, herra forseti, og ég er engin undantekning frá því, að öll þráum við öryggi og flest okkar setjum traust okkar á stjórnvöld þegar kemur að því að vernda okkur öll, borgarana, gegn utanaðkomandi ógnum. En hættan er sú að þessi ótti geri okkur sljó í varðstöðunni fyrir borgaralegum réttindum okkar, að við afhendum frelsið af fúsum og frjálsum vilja og sættum okkur við að mikilvæg borgaraleg réttindi séu lögð til hliðar í nafni almannaheilla. Við getum ekki sakast við stjórnvöld. Við getum sakast við okkur sjálf. Við erum hluti af þessu samfélagi og við eigum auðvitað að láta í okkur heyra. En við verðum að hafa burði til þess núna, ekki síst þegar frumvarp til nýrra sóttvarnalaga verður lagt fram í fjórða skipti, að gera úttekt af því tagi sem hér er lagt til, að farið sé yfir það með skipulegum hætti af sérfræðingum á sviði lögfræði með hvaða hætti og hvort gætt var með nægilegum hætti að borgaralegum réttindum okkar þegar gripið var til sóttvarnaaðgerða. Það er auðvitað stundum þannig að það kunna að vera réttmæt rök til að takmarka frelsi einstaklinga vegna almannaheilla. Undir það skal tekið. En slíkt verður alltaf að vera tímabundið og slíkt verður aldrei hægt að samþykkja öðruvísi en að Alþingi Íslendinga komi að þeim ákvörðunum eftir a.m.k. einhvern ákveðinn tíma, tvær til þrjár vikur eða svo. Guð gefi okkur það að þurfa ekki að glíma við þetta. Það væri skynsamlegast fyrir okkur hér á þingi, áður en við tökum til við að afgreiða ný sóttvarnalög, að þessi úttekt lægi fyrir þannig að við vissum hvaða hugsanlegir fingurbrjótar væru í þeirri lagasetningu sem við erum að glíma við, hvernig við getum styrkt sóttvarnalögin og styrkt réttindi borgaranna í sóttvarnalögunum sjálfum þannig að brjóstvörn mannréttinda verði líka í sóttvarnalögunum, ekki síður en í stjórnarskrá. Hitt er svo annað að það frumvarp sem lagt er fram hér hefur tekið verulegum breytingum frá því að það var fyrst lagt fram. Ég hygg að mér sé óhætt að fullyrða að frumvarpið, a.m.k. eins og það var þegar við slitum þingi hér í sumar, var allt annað og betra en upphaflega og töluvert mikið betra, í rauninni miklu betra, en gildandi sóttvarnalög. Að því leyti kann að vera skynsamlegt fyrir þingið að afgreiða sóttvarnalögin í þeim ásetningi að taka þau til endurskoðunar þegar viðkomandi skýrsla, sem við erum að biðja um að verði gerð, og tillögur frá þar til bærum sérfræðingum líta dagsins ljós. Það kann að vera að það séu skynsamlegustu vinnubrögðin fyrst menn náðu ekki að afgreiða þessa tillögu hér á liðnu þingi með þeim hætti sem ég var að vonast eftir og flutningsmenn.
Ég legg til að þessi þingsályktunartillaga gangi til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.