skipun nefndar til að greina sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda í heimsfaraldri kórónuveirunnar í ljósi mannréttindakafla stjórnarskrárinnar.
Herra forseti. Það kemur kannski ekki á óvart að hv. þingmaður skilji ekki hvað við erum að reyna að kalla fram. Þar kristallast munurinn á hugmyndafræði og sannfæringu okkar hægri manna, sem stöndum vörð um réttindi og frelsi borgaranna, og fólks sem telur að það sé í lagi að hafa afskipti af og hafa áhrif á og jafnvel stjórna lífi og ákvörðunum einstaklinga. Það er það sem þetta snýst um, hæstv. forseti.
Ég ætla að minna hv. þingmann á eitt. Þegar ég segi að atlaga hafi verið gerð að málfrelsi þá skulum við hafa í huga að hér stigu fram tveir ráðherrar úr Sjálfstæðisflokknum, konur, hæstv. ráðherra Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og hæstv. ráðherra Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, og lýstu yfir ákveðnum efasemdum og spurðu spurninga opinberlega. Hreytt var í þær ónotum, reynt var að kaffæra spurningar og athugasemdir þeirra og þar tóku mjög margir undir sem ég hitti í dag og myndu ekki vilja að það yrði rifjað upp. Þetta kalla ég atlögu að málfrelsi m.a., og ég kalla það atlögu að málfrelsi þegar lítið er gert úr málefnalegri gagnrýni eins og sumir í heilbrigðiskerfinu gerðu skipulega og jafnvel með skætingi. Og fjölmiðlar tóku undir. Ég er ekki bara að tala um Ísland, hv. þingmaður. Þetta var því miður alþjóðlegt vandamál, en munurinn á stjórnmálaskoðunum okkar og sannfæringu og því sem rekur okkur áfram í pólitík kristallast í andsvari hv. þingmanns.