skipun nefndar til að greina sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda í heimsfaraldri kórónuveirunnar í ljósi mannréttindakafla stjórnarskrárinnar.
Herra forseti. Það kann að vera rétt að ólík heimssýn (Gripið fram í.) okkar hv. þingmanns kristallist í þessum umræðum en mér finnst hv. þingmaður, og það er kannski aftur merki um ólíka sýn, nálgast hugtakið frelsi og frelsi til hvers á algerlega öðrum forsendum en ég myndi vilja gera. Mér finnst mikilvægt að standa vörð um frelsi einstaklingsins til að geta búið í samfélagi þar sem allt er gert til þess að hefta útbreiðslu smita, hefta útbreiðslu sjúkdóms sem vitað var að var með háa dánartíðni. Við sáum hvað var að gerast í öðrum löndum og þær hörmungar sem það leiddi yfir fólk og fjölskyldur. Sem betur fer fórum við ekki í það að setja á útgöngubann, einmitt vegna þess að verið var að huga að frelsi einstaklingsins. Farið var í mildar aðgerðir. Frelsi einstaklingsins er til margra hluta. Það er ekki bara frelsi til þess að standa vörð um til að mynda eignarréttinn heldur er það líka frelsi til þess að geta búið í samfélagi sem heldur utan um þau sem eru í viðkvæmri stöðu þegar kemur að sjúkdómum. Það er þetta frelsi sem mér finnst mjög mikilvægt að standa vörð um og tala fyrir hér í dag.