skipun nefndar til að greina sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda í heimsfaraldri kórónuveirunnar í ljósi mannréttindakafla stjórnarskrárinnar.
Herra forseti. Ég ætla að biðja hv. þingmann um að lesa tillöguna. Hún er um það að hér verði gerð úttekt af þar til bærum sérfræðingum á þeim lagalegu heimildum sem lágu að baki því að hér var gengið gegn borgaralegum réttindum. Ég held því fram að þær lagalegu heimildir hafi í besta falli verið á bjargbrún hins lagalega og í versta falli brotið gegn stjórnarskrá. Menn geta ekki hræðst slíkt. Það má kannski ekki segja það núna en þegar ég var ungur maður voru Sovétríkin enn við lýði. Ég tók þátt í því að bjóða hingað til lands flóttamanni frá Afganistan sem var að berjast við sovéska herinn í sínu heimalandi, berjast fyrir frelsi sínu. Þá hljómaði hér á götunum frá þeim sem mótmæltu þessum frelsishermanni frá Afganistan: Betra að vera rauður en dauður.
Frelsi okkar til orðs og æðis er svo mikilvægt og má ekki nálgast það af einhverri léttúð. Ég mun aldrei samþykkja það að einn maður eða ein ríkisstjórn geti með einföldu pennastriki tekið ákvörðun um að takmarka mitt athafnafrelsi á grundvelli einhverra almannaheilla. Við erum hins vegar sammála um það að hér verði að vera skilmerkileg og góð löggjöf þegar kemur að sóttvörnum. Um það eru ekki deilur. Ekki er deilt um það að við reynum að verja þá sem veikir standa þegar ógn steðjar að. (Forseti hringir.) Deilan er um það hvort við höfum burði til þess að setjast niður og átta okkur á því hvort við (Forseti hringir.) höfðum lagalegar heimildir til að grípa inn í líf einstaklinga með afleiðingum sem við erum enn þá að bera kostnaðinn af. (Forseti hringir.) Hinn félagslegi kostnaður vegna sóttvarnaaðgerða hefur ekki enn komið að fullu fram.
(Forseti (ÁsF): Ég minni hv. þingmann á að hann hefur ekki frelsi til þess að fara fram úr ræðutímanum.)