155. löggjafarþing — 7. fundur,  18. sept. 2024.

skipun nefndar til að greina sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda í heimsfaraldri kórónuveirunnar í ljósi mannréttindakafla stjórnarskrárinnar.

116. mál
[16:46]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp sem einn meðflutningsmanna þessarar tillögu og þakka hv. 1. flutningsmanni, Óla Birni Kárasyni, kærlega fyrir frumkvæðið. Ljóst er að gríðarlega íþyngjandi reglur voru settar á í heimsfaraldri og skerðingum komið á án aðkomu löggjafans. Þó að slíkar neyðarréttaraðgerðir geti átt rétt á sér tímabundið er ljóst að neyðarréttur getur ekki verið grundvöllur ákvarðana mánuðum og árum saman. Það er auðvitað Alþingi sem fer með löggjafarvaldið, setur m.a. borgurum reglur og kemur á skerðingum þegar tilefni er til þess og stjórnvöld sitja í umboði Alþingis eins og hv. framsögumaður málsins benti á.

Nú þegar við stöndum frammi fyrir ýmsum áskorunum sem tengjast m.a. andlegri líðan barna og ungmenna er gríðarlega mikilvægt að við förum yfir ákvarðanatöku varðandi þær aðgerðir sem var gripið til. Þær aðgerðir voru m.a. kvaðir og skerðingar á lífi og heilsu barna og ungmenna. Nú þegar rykið hefur sest og tíminn liðið hafa þessar aðgerðir elst misvel, aðgerðir sem ég myndi seint kalla mildar. Börn og ungmenni á Íslandi sættu ítrekuðum takmörkunum af hálfu stjórnvalda og endurtekinni einangrun, jafnvel nokkrar vikur í senn. Ákvarðanir um skemmtanahald voru teknar til að sinfóníutónleikar gætu til að mynda farið fram en skemmtanalífi yngri kynslóðanna var fórnað í þágu almannahagsmuna þrátt fyrir þá vitneskju sem lá lengst af fyrir um að börnum stafaði lítil hætta af heimsfaraldrinum. Á þessum tveimur árum fjölgaði tilkynningum til barnaverndaryfirvalda mikið en jafnvel sú staðreynd virtist ekki vega mjög þungt í ákvarðanatöku stjórnvalda.

Ég vonast því til þess, virðulegi forseti, að málið fái þinglega meðferð og að við sameinumst um að óska eftir greiningu á afleiðingum af aðgerðum stjórnvalda. Þannig getum við lært af þeim mistökum sem gerð voru og af því með hvaða hætti ákvarðanirnar voru teknar áður en það verður um seinan, eins og hv. framsögumaður málsins hefur lagt áherslu á.