155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

afsal varaþingmennsku.

[10:32]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá 1. varaþingmanni Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, Brynjari Níelssyni, dagsett 18. september sl., þess efnis að hann segi af sér varaþingmennsku fyrir flokkinn. Samkvæmt þessu færast varamenn flokksins neðar á listanum upp um eitt sæti og fyrsti varaþingmaður flokksins í kjördæminu verður Kjartan Magnússon.