155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

húsnæðisliður í vísitölu neysluverðs.

[10:35]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina sem var nú víðtæk og víða borið niður. Þingmaðurinn hóf ræðu sína á því að segja að allir ættu að líta í eigin barm. Þar var hann að vísa í viðtal sem var haft við mig í Morgunblaðinu, viðskiptamogganum, það er rétt. Þá var verið að tala um þá þrjá meginþætti eða þá þrjá meginaðila sem hafa hvað mest stjórn á efnahagsmálunum eða atvinnulífinu, þ.e. vinnumarkaðinn, Seðlabankann og ríkisstjórnina, og ég sagði að allir þeir þrír ættu að líta í eigin barm; getum við gert betur? Ég held að það sé bara í raun þannig og það gildir að sjálfsögðu um ríkisstjórnina og ráðherrann sem hér stendur.

Síðan hélt þingmaðurinn áfram og var að ræða um húsnæðismálin og reyndar þessi tengsl okkar við verðbólgu. Það er áhugavert að í öllum könnunum sem hafa verið gerðar mjög lengi hjá Gallup þá hefur verið beint samhengi á milli þess sem almenningur metur sem atvinnuástand og efnahagslífs, nema núna síðustu misserin og í raun er verulegur munur þar á eftir að verðbólgan fór yfir 5%. Menn telja, sem rétt er, að atvinnuástandið sé mjög gott enda er atvinnustigið mjög hátt, á meðan menn telja að efnahagslífið sé talsvert öðruvísi. Það er kannski vísbending um að nýjar kynslóðir séu með meira verðbólguóþol heldur en við höfum haft áður. Ég held að það séu jákvæð tíðindi að við erum að verða líkari nágrannaríkjum okkar og förum þá að haga okkur og vinna samkvæmt því.

Varðandi síðan húsnæðisliðinn þá er það auðvitað ekki í höndum ríkisstjórnarinnar og hv. þingmaður þekkir það. Þetta er hluti af vinnu Hagstofunnar sem er með vísitölureikninga á hendi. Við getum auðvitað tekið þá umræðu og mér skilst að einn af hv. þingmönnum Flokks fólksins (Forseti hringir.) hafi óskað eftir slíkri umræðu. Við getum þá tekið hana dýpra heldur en hér í óundirbúnum umræðum á einni eða tveimur mínútum.