skyldur stjórnvalda samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Forseti. Í byrjun júlí fannst hæstv. ráðherra gríðarlega mikilvægt að stjórnvöld færu eftir barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Ráðherra sagði við það tilefni, með leyfi forseta:
„Í þessu tilfelli, þá treysti ég því að það hafi verið unnið ítarlegt hagsmunamat á hagsmunum þessa drengs þar sem hans hagsmunir voru skoðaðir en ekki skilvirkni kerfisins eða staða fjölskyldunnar í heild sinni.“
Enn fremur sagði ráðherra:
„Mér fyndist nöturlegt ef niðurstaðan yrði sú að barnasáttmálinn og réttindi barna myndu ekki grípa þetta barn.“
Nú liggur fyrir að það fór ekki fram ítarlegt hagsmunamat. Barnasáttmálinn greip hann ekki. Það þurfti pólitísk afskipti og þá hljótum við að þurfa að spyrja okkur: Hvernig gat þetta gerst, þrátt fyrir traust ráðherra til þar til bærra stjórnvalda? Miðað við þetta, ber ráðherra enn traust til Útlendingastofnunar og kærunefndar og lögreglunnar, þrátt fyrir að kerfið hafi brugðist ráðherra svona, eða var þessi brottvísun bara rétt niðurstaða samkvæmt gildandi lögum, að ekki sé horft nægilega mikið til barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna til að koma í veg fyrir svona nöturlega niðurstöðu?