Skyldur stjórnvalda samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Forseti. Ég held að það sé augljóst að áhyggjurnar hafa raungerst nú þegar, dæmið sem blasir við okkur. Það er dálítið áhugavert að horfa til þess einmitt að þegar útlendingalögin voru uppfærð nú síðast þá voru þessar heimildir sem hefði verið hægt að grípa til, án þessara pólitísku afskipta, fjarlægðar, í síðustu lagabreytingum. Það var ekki bara upp úr þurru einhvern veginn, það var ítrekað varað við því að einhvers konar svona dæmi, svona niðurstaða, gæti komið upp. Fólki hefur verið hent út á götuna, og nú erum við að sjá annað dæmi, vegna þessara breytinga á útlendingalögum. Er það það sem ráðherra vildi þegar hann greiddi atkvæði með þeim breytingum? Því atkvæði okkar hér í þingsal skiptir máli þegar verið er að samþykkja lög eða hafna þeim, þegar allt kemur til alls. Var ráðherra sem sagt að segja að hann hafi ekki skoðað málið nógu gaumgæfilega þegar það var afgreitt hér í vor?