bókun 35 við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég tel tilefni til að koma því sérstaklega á framfæri að frá því að ég lagði málið fram og mælti fyrir því hér á þingi síðast, og það fór til utanríkismálanefndar, hefur orðið meiri háttar forsendubreyting. Hæstiréttur, æðsti dómstóll landsins, var með fullskipaðan dóm í fyrsta skipti með nýju fyrirkomulagi, þar sem rétturinn staðfesti fyrri framkvæmd sína varðandi túlkun á 3. gr. EES-laganna, þ.e. að hún sé skýringarregla. Dómstólar eru þar með búnir að kveða úr um það. Hæstiréttur slær þar föstu að bókun 35 sé ekki fyllilega innleidd hér á landi. Þannig hefur ekki verið lagt til grundvallar að það ákvæði, sem er þá skýringarreglan í 3. gr. EES-laga, feli í sér almenna forgangsreglu í samræmi við bókun 35 við EES-samninginn, og ég nefni það aftur að bókun 35 hefur ekki tekið neinum breytingum í orðalagi eða efnislega. Um er að ræða sömu ákvörðun og var tekin fyrir 30 árum.
Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, og Þorgeir Örlygsson skrifuðu grein saman í afmælisrit EFTA-dómstólsins sem birtist nú í vikunni. Þeir segja, með leyfi forseta:
„Það er okkar skoðun að í ljósi þeirrar óvissu sem uppi er varðandi hvort Ísland hafi innleitt bókun 35 við EES-samninginn með fullnægjandi hætti, og vegna þeirrar ósamkvæmni sem gætt hefur í dómaframkvæmd hér á landi varðandi þetta, sé það mikilvægt að íslenski löggjafinn leysi úr vandanum og setji í lög skýrt og óskilyrt ákvæði á þessu sviði og virði þannig þær skuldbindingar sem koma fram í bókun 35.“
Þetta væru þessir ágætu menn auðvitað ekki að segja með svona skýrum hætti nema það lægi þegar fyrir að það frumvarp sem lagt hefur verið fram, og bíður þess að verða lagt fram aftur, fari ekki gegn stjórnarskrá lýðveldisins. (Forseti hringir.) Hæstiréttur, æðsti dómstóll á Íslandi, er búinn að segja: Okkur er vandi á höndum, hann þarf að leysa. Enginn leysir hann nema löggjafinn. Ég spyr þá í þingsal, þegar kemur að því að ég mæli fyrir málinu, sem vonandi verður, hvort löggjafinn ætli að skila auðu í því. Þetta er ekki mjög óskýrt.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutími er takmarkaður í óundirbúnum fyrirspurnum, er tvær mínútur í fyrri ræðu og ein mínúta í síðari ræðu.)