155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

bókun 35 við EES-samninginn.

[10:50]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Þetta er auðvitað óboðlegt að ráðherra komi hér upp og tali í tvær mínútur um allt annað en það sem hæstv. ráðherra er spurður um. Ég ætla hér í seinni spurningu — af því að ég gef mér að hæstv. ráðherra ætli sér ekki að svara spurningunni sem ég lagði fyrir hann, en það verður þá reynt með öðrum hætti síðar. Þegar orkupakki þrjú var samþykktur í september 2019 var gerð sérstök breyting á þingsályktun sem sagði, með leyfi forseta:

„Ekki verður ráðist í tengingu raforkukerfis landsins við raforkukerfi annars lands í gegnum sæstreng nema að undangengnu samþykki Alþingis.“

Þetta er í þingsályktun. Með innleiddri bókun 35, eins og ráðherra leggur hana fyrir þingið væntanlega núna á næstunni, hvert verður gildi þessa ákvæðis í þingsályktun að mati hæstv. ráðherra? Fellur það í ljósi þess að það stangast mögulega á við aðrar reglur frá Evrópusambandinu?

Hver er afstaða (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra til þessa tiltekna atriðis, af því ég veit að hæstv. ráðherra þekkir þetta? Ég bið (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra að svara spurningunni en ekki halda ræður um eitthvað allt annað og ótengt eins og gert var hér í fyrra svari.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir aftur á takmarkaðan ræðutíma.)